Til umsagnar
21.8.–4.9.2023
Í vinnslu
5.9.–18.12.2023
Samráði lokið
19.12.2023
Mál nr. S-152/2023
Birt: 21.8.2023
Fjöldi umsagna: 5
Áform um lagasetningu
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Nýsköpun, rannsóknir og þekkingargreinar
Frumvarp birt til umsagnar.
Frumvarpið mun fjalla um lágmarksreglur til þess að auka hagnýtingu opinna gagna sem safnað er hjá opinberum aðilum í þeim tilgangi að örva nýsköpun og til hagsbóta fyrir samfélagið í heild.
Opinberir aðilar safna, framleiða, endurvinna og gefa út ógrynni upplýsinga á ólíkum sviðum. Aðgengi að slíkum upplýsingum getur haft mikið samfélagslegt gildi, ekki síst ef slíkt aðgengi er veitt með gagnvirkum, stöðluðum og stafrænum hætti. Með greiðara aðgengi að opinberum gögnum er mögulegt að endurnýta gögnin og auka þjóðhagslegt verðmæti þeirra, veita frumkvöðlastarfi og nýsköpun brautargengi í atvinnulífinu og stuðla að þróun nýrrar tækni og betri þjónustu samfélaginu til heilla.
Magn gagna sem safnast saman á vegum hins opinbera hefur aukist margfalt á síðustu árum, einkum frá því tilskipun 2003/89/EC tók gildi. Gildandi lög taka mið af lágmarks samræmingu innan Evrópska efnahagssvæðisins með aukið aðgengi einkaaðila að leiðarljósi. Ný tækni og greiningartól, s.s. vélnám, gervigreind og hlutanetið, auka möguleikana til hagnýtingar gagna og til þróunar nýrra vara og þjónustu. Hinni nýju tilskipun er ætlað að auka þessa hagnýtingarmöguleika, óháð nýrri tækni.
Tilskipunin skilgreinir sérstaklega að tiltekin gagnasöfn geti talist mjög verðmæt. Til að tryggja hámarksáhrif þeirra og eins mikla notkun og mögulegt er, skulu þau gagnasöfn gerð aðgengileg gjaldfrjáls og með minnstu mögulegu lagalegum og tæknilegum takmörkunum. Jafnframt verður skylt að tryggja aðgengi að þeim með svonefndum forritaskilum (API).
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa stefnumörkunar og alþjóðamála
hvin@hvin.is