Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 22.7.–8.8.2023

2

Í vinnslu

  • 9.8.2023–27.10.2025

3

Samráði lokið

  • 28.10.2025

Mál nr. S-144/2023

Birt: 22.7.2023

Fjöldi umsagna: 11

Drög að reglugerð

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfismál

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 456/1994 um fuglaveiðar og nýtingu hlunninda af villtum fuglum, með síðari breytingum

Niðurstöður

Bent á að sölubann á grágæs eingöngu væri ekki nóg, að erfitt væri að framfylgja því, bent var á vandi fækkunar væri ekki bara hér heldur að stærri hluta í Bretlandi. Bent á að banna ætti vetrarveiði, sölubann og stytting veiðitímabils myndu ekki duga, heldur þyrfti rannsóknir, að skýrara þyrfti að vera hvort fullnýting af bráð væri lögleg (lagfært), að sölubann væri nóg og ekki ætti að stytta veiðitíma, að fresta ætti reglugerð þar sem verið væri að vinna að alþjóðlegri stjórnunar- og verndaráætlun fyrir grágæs og tímarammi sölubanns væri skýrt skilgreindur.

Málsefni

Í ljósi þess að grágæsum hefur fækkað á undanförnum árum kynnir ráðuneytið breytingu á reglugerð nr. 456/1994. Breytingin lýtur að því að óheimilt verði að bjóða til sölu eða selja grágæs.

Nánari upplýsingar

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir drög að breytingu á reglugerð er varðar sölu á grágæs. Með breytingunni verður óheimilt að flytja út, bjóða til sölu eða selja grágæs og afurðir hennar en þó verður heimilt að selja uppstoppaða grágæs.

Í kjölfar ákvörðunar samningsins um verndun afrísk-evrasískra votlendisfarfugla (AEWA) í september 2022 um aukna vernd á íslensk-breska grágæsastofninum af völdum verulegrar fækkunar í stofninum frá 2012 hefur umhverfis, -orku- og loftslagsráðuneytið ákveðið að gera breytingar á reglugerð nr. 456/1994 um vernd og nýtingu villtra fugla. Tilgangur breytingarinnar er að draga úr veiðum og álagi á grágæsastofninn hér á landi næstu þrjú árin. Innan þriggja ára er svo áætlað að sameiginleg alþjóðleg stjórnunar- og verndaráætlun Íslendinga og Breta verði tilbúin þar sem tilgreindar verða nauðsynlegar aðgerðir til verndar stofnimum.

Vakin er athygli á því að samkvæmt 12. gr. reglugerðar nr. 456/1994 varða brot gegn reglugerðinni sektum eða fangelsi allt að 2 árum og sviptingu skotvopna- og veiðileyfis.

Frestur til að gera athugasemdir við drögin er til og með 8. ágúst nk.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Skrifstofa stefnumótunar og innleiðingar

urn@urn.is