Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 17.7.–18.8.2023

2

Í vinnslu

  • 19.8.2023–8.2.2024

3

Samráði lokið

  • 9.2.2024

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-138/2023

Birt: 17.7.2023

Fjöldi umsagna: 0

Áform um lagasetningu

Dómsmálaráðuneytið

Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála

Áform um breytingar á lögum um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög og lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá (aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka)

Niðurstöður

Engar umsagnir bárust. Drög að frumvarpi um þetta efni var birt í Samráðsgátt 9. febrúar 2024.

Málsefni

Áformað er að breyta tilteknum ákvæðum laga nr. 108/1999 og 19/1988 til þess að bregðast við ábendingum í áhættumati Ríkislögreglustjóra vegna peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka.

Nánari upplýsingar

Með aðild sinni að alþjóðlega fjármálaaðgerðahópnum Financial Action Task Force (FATF) hefur Ísland skuldbundið sig til þess að laga löggjöf sína varðandi aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka að tilmælum samtakanna. Í samræmi við þær kröfur sem leiða má af tilmælum FATF er gert ráð fyrir því í tilskipunum Evrópusambandsins að öll aðildarríki framkvæmi áhættumat á helstu ógnum og veikleikum sem stafa af peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka innan hvers aðildarríkis fyrir sig. Samkvæmt 4. gr. laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 140/2018, skal Ríkislögreglustjóri gera áhættumat sem inniheldur greiningu og mat á hættu á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, svo og leiðir til að draga úr greindri áhættu.

Í áhættumati Ríkislögreglustjóra fyrir árið 2019 kom fram að veruleg áhætta teldist vera af peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka í gegnum ákveðin félagaform, í fyrsta lagi trú- og lífsskoðunarfélög, sbr. lög nr. 108/1999 og í öðru lagi sjóði og stofnanir sem starfi samkvæmt staðfestri skipulagskrá, sbr. lög nr. 19/1988. Sama áhættuflokkun var til staðar í áhættumati Ríkislögreglustjóra fyrir árið 2021. Markmiðið með lagabreytingunum er að draga úr áhættu á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka í þeirri starfsemi sem lögin taka til

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa réttinda einstaklinga

dmr@dmr.is