Til umsagnar
17.7.–18.8.2023
Í vinnslu
19.8.2023–
Samráði lokið
Mál nr. S-137/2023
Birt: 17.7.2023
Fjöldi umsagna: 4
Áform um lagasetningu
Dómsmálaráðuneytið
Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála
Áformað er að breyta tilteknum ákvæðum laga nr. 73/1994 og 13/1973 til þess að bregðast við ábendingum í áhættumati Ríkislögreglustjóra vegna peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka.
Með aðild sinni að alþjóðlega fjármálaaðgerðahópnum Financial Action Task Force (FATF) hefur Ísland skuldbundið sig til þess að laga löggjöf sína varðandi aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka að tilmælum samtakanna. Í samræmi við þær kröfur sem leiða má af tilmælum FATF er gert ráð fyrir því í tilskipunum Evrópusambandsins að öll aðildarríki framkvæmi áhættumat á helstu ógnum og veikleikum sem stafa af peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka innan hvers aðildarríkis fyrir sig. Samkvæmt 4. gr. laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 140/2018, skal Ríkislögreglustjóri gera áhættumat sem inniheldur greiningu og mat á hættu á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, svo og leiðir til að draga úr greindri áhættu.
Í áhættumati Ríkislögreglustjóra fyrir árið 2019 kom fram að veruleg hætta er á því að spilakassar geti verið notaðir til að þvætta fé. Sama áhættuflokkun var til staðar í áhættumati Ríkislögreglustjóra fyrir árið 2021. Markmiðið með lagabreytingunum er að draga úr áhættu á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka í þeirri starfsemi sem lögin taka til.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa réttinda einstaklinga
dmr@dmr.is