Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 17.7.–7.8.2023

2

Í vinnslu

  • 8.2023–25.8.2024

3

Samráði lokið

  • 26.8.2024

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-136/2023

Birt: 17.7.2023

Fjöldi umsagna: 0

Áform um lagasetningu

Heilbrigðisráðuneytið

Sjúkrahúsþjónusta

Breyting á lögum um sjúklingatryggingu nr. 111/2000

Niðurstöður

Engar umsagnir bárust og var unnið að frumvarpi um málið.

Málsefni

Heilbrigðisráðherra áformar að gera breytingar á lögum um sjúklingatryggingu nr. 111/2000.

Nánari upplýsingar

Heilbrigðisráðuneytið áformar að gera breytingar á lögum um sjúklingatryggingu nr. 111/2000. Breytingar verða byggðar á vinnu starfshóps sem heilbrigðisráðherra skipaði í byrjun þessa árs um heildarendurskoðun laganna og hefur m.a. það verkefni að taka til skoðunar hvort rétt sé að breyta viðmiðum um hámarksbætur, hvort rétt sé að sjúklingatrygging bæti aukaverkanir vegna lyfja, réttar til bóta vegna andláts barns, málsmeðferð Sjúkratrygginga, heimildir til vinnslu persónuupplýsinga o.fl. Í áformunum kemur m.a. fram að markmið endurskoðunar laganna sé að einfalda sjúklingum að sækja bætur vegna tjóns af völdum heilbrigðisþjónustu og auka tryggingavernd þeirra. Að öðru leyti vísast til umfjöllunar í áformunum.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Heilbrigðisráðuneytið

hrn@hrn.is