Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 13.7.–7.8.2023

2

Í vinnslu

  • 8.8.2023–

Samráði lokið

Mál nr. S-130/2023

Birt: 13.7.2023

Fjöldi umsagna: 2

Áform um lagasetningu

Innviðaráðuneytið

Húsnæðis- og skipulagsmál

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjöleignarhús (samþykki annarra eigenda fyrir skammtímaleigu/gististarfsemi)

Málsefni

Innviðaráðherra áformar að leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjöleignarhús, nr. 26/1994, varðandi samþykki annarra eigenda fyrir skammtímaleigu/gististarfsemi.

Nánari upplýsingar

Til skoðunar hefur verið um nokkra hríð að skýra nánar þær reglur sem gilda um gististarfsemi (skammtímaleigu) í fjöleignarhúsum m.t.t. þess hvort og þá að hvaða marki aðrir eigendur þurfi að veita samþykki fyrir slíkri starfsemi. Réttaróvissa hefur verið uppi um álitaefnið í ljósi framkvæmdar annars vegar fyrir kærunefnd húsamála og hins vegar dómstólum. Talið er að þessi réttaróvissa hafi jafnvel leitt til þess að umfang skammtímaleigu íbúða í fjölbýlishúsum sé meira en staðið hafi til við setningu gildandi laga og reglna á þessu sviði. Umfangsmikil skammtímaleiga íbúðarhúsnæðis hefur neikvæð áhrif á framboð íbúða á almennum leigumarkaði og skýrari reglur á þessu sviði eru því taldar geta fjölgað slíkum íbúðum og haft þannig jákvæð áhrif á þá hópa sem skortir leiguhúsnæði.

Áform eru því uppi um að skýra ákvæði um skilyrði skammtímaleigu íbúðarhúsnæðis í fjöleignarhúsum. Einkum er horft til þess að kveða sérstaklega á um hvaða reglur gildi um samþykki annarra eigenda fyrir skammtímaleigu í fjöleignarhúsum eftir eðli starfseminnar (heimagisting eða rekstrarleyfisskyld gististarfsemi) og samsetningu fjöleignarhússins (íbúðarhúsnæði eingöngu, atvinnuhúsnæði eingöngu, blandað húsnæði).

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Skrifstofa húsnæðis- og skipulagsmála

irn@irn.is