Til umsagnar
30.6.–15.8.2023
Í vinnslu
16.8.2023–15.1.2025
Samráði lokið
16.1.2025
Mál nr. S-125/2023
Birt: 30.6.2023
Fjöldi umsagna: 0
Áform um lagasetningu
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Engar umsagnir bárust. Drög að frumvarpi voru birt til umsagnar í máli nr. S-3/2025.
Áformuð er lagasetning um verðbréfun, til innleiðingar á STS-reglugerð (ESB) 2017/2402, með áorðnum breytingum, ásamt tilheyrandi breytingum á CRR-reglugerðinni.
Birt eru til umsagnar áform um lagasetningu til innleiðingar á reglugerð (ESB) 2017/2402 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun, og um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB, 2009/138/EB og 2011/61/ESB og reglugerðum (EB) nr. 1060/2009 og (ESB) nr. 648/2012 (STS-reglugerðin). Jafnframt verði innleidd hér á landi reglugerð (ESB) 2021/557 um breytingar á STS-reglugerðinni, svo og tvær gerðir er tengjast STS og breyta reglugerð (ESB) nr. 575/2013 um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir og fjárfestingarfyrirtæki (CRR-reglugerðinni), þ.e. reglugerðir (ESB) 2017/2402 og 2021/558. Fyrirhugað er frumvarp til nýrra heildarlaga og um breytingar á gildandi lögum.
Með verðbréfun er átt við viðskiptasamning eða kerfisfyrirkomulag þar sem greiðslufallsáhætta tengd kröfu eða kröfusafni (áhættuskuldbindingu eða safni áhættuskuldbindinga), t.d. lánasafni, er lagskipt í hluta (áhættulög) og umbreytt í framseljanlegar verðbréfaðar afurðir sem seldar eru til fjárfesta. Hagnaður fjárfestis er háður afkomunni af undirliggjandi kröfu eða kröfusafni og forgangsröðun áhættulaga ákvarðar dreifingu taps á líftíma viðskiptasamningsins eða kerfisfyrirkomulagsins. Verðbréfun er ein tegund fjármögnunarviðskipta fjármálastofnana og álitin mikilvægur þáttur í vel starfhæfum fjármálamarkaði, enda sé hún byggð á traustu skipulagi.
Markmið STS-reglugerðarinnar er að koma á styrkri lagaumgjörð í kringum verðbréfunarviðskipti, draga úr áhættunni sem felst í verðbréfun og tryggja aðgreiningu einfaldra, gagnsærra og staðlaðra verðbréfunarafurða, svokallaðrar STS-verðbréfunar, (e. simple, transparent and standardized), frá flóknum, ógagnsæjum og áhættusamari afurðum.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa fjármálamarkaðar
fjr@fjr.is