Til umsagnar
30.6.–28.7.2023
Í vinnslu
29.7.2023–
Samráði lokið
Mál nr. S-124/2023
Birt: 29.6.2023
Fjöldi umsagna: 7
Áform um lagasetningu
Forsætisráðuneytið
Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla
Áformuð er lagasetning um að koma á fót innlendri smágreiðslulausn sem þjóni þjóðaröryggi og stuðli að hagkvæmni fyrir neytendur.
Birt eru til umsagnar áform um lagasetningu um að koma á fót innlendri smágreiðslulausn sem þjóni þjóðaröryggi og stuðli að hagkvæmni fyrir neytendur. Hinn 30. mars 2023 skipaði forsætisráðherra starfshóp sem hefði það hlutverk að vinna tillögur á sviði greiðslumiðlunar. Í hópnum áttu sæti Páll Þórhallsson skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, Benedikt Hallgrímsson, lögfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, og Guðrún S. Gunnarsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri á skrifstofu bankastjóra hjá Seðlabanka Íslands. Hópurinn samdi þau áform um lagasetningu sem nú eru birt til samráðs í samráðsgátt.
Fyrirhugaðri lagasetningu er ætlað að tryggja að til verði skilvirk greiðslulausn innanlands, t.d. við kaup á vöru í smásölu, sem feli í sér að greiðslur berist milli tveggja innlánsreikninga. Þannig verði hægt að stunda dagleg viðskipti í verslunum til dæmis án þess að greiðslur fari fram fyrir milligöngu erlendra aðila, hvort sem notuð eru kredit- eða debetkort, eins og nú er. Slíkt er öryggismál ef brestur verður á tengingum við útlönd en ætti einnig að vera ódýrara fyrir neytandann.
Þess má geta að samhliða á Seðlabankinn í viðræðum við innlánsstofnanir um að koma slíkri greiðslulausn á fót. Vegna þess hve málið er brýnt þykir rétt eigi að síður að undirbúa lagasetningu sem yrði þá væntanlega í því formi að veita Seðlabankanum nauðsynlegar heimildir til að koma greiðslumiðlunarkerfi á laggirnar og sjá til þess að allir hlutaðeigandi taki þátt í því.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa stjórnskipunar og stjórnsýslu
for@for.is