Til umsagnar
24.3.–3.4.2023
Í vinnslu
4.2023–4.4.2024
Samráði lokið
5.4.2024
Mál nr. S-76/2023
Birt: 24.3.2023
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Atvinnuvegaráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Frumvarpið var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda 24. mars - 3. apríl 2023. Nokkrar breytingar urðu á frumvarpinu haustið 2023 og frumvarpið því kynnt aftur í samráðsgáttinni 22.-28. nóvember 2023, sjá mál S-244/2023. Tvær umsagnir bárust um frumvarpið í nóvember 2023. Umfjöllun um umsagnir og viðbrögð við þeim má finna í samráðskafla frumvarpsins eins og það var lagt fram á Alþingi, sjá nánar um þinglega meðferð málsins: https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/154/627/?ltg=154&mnr=627
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um fyrirtækjaskrá og fl. v. ákvæða í tilskipunum og reglugerðum framkvæmdastjórnar ESB um samtengingarkerfi skráa skv. 22. gr. tilskipunar 2017/1132.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um fyrirtækjaskrá og fleiri lagabálkum vegna ákvæða í tilskipunum ESB og framkvæmdarreglugerðum framkvæmdastjórnar ESB um samteningarkerfi skráa skv. 22. gr. tilskipunar (ESB) 2017/1132. Í framangreindu ákvæði er kveðið á um að samteningu aðal-, fyrirtækja- og félagaskráa í aðildarríkjunum. Í ákvæðum tilskipunarinnar og framkvæmdareglugerða framkvæmdastjórnarinnar settra á grundvelli hennar er kveðið á um að nánar tilgreindar upplýsingar um hlutafélög, einkahlutafélög, útbú erlendra hlutafélaga og einkahlutafélaga skuli vera aðgengilegar í gegnum samteningarkerfið. Einnig er í tilskipun (ESB) 2015/849 kveðið á um aðgang lögbærra yfirvalda og tilkynningaskyldra aðila eins og þeir eru skilgreindir í tilskipuninni að upplýsingum um raunverulega eigendur lögaðila í gegnum samteningarkerfið.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa viðskipta og fjölmiðla
mvf@mvf.is