Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 8.–15.3.2023

2

Í vinnslu

  • 16.–30.3.2023

3

Samráði lokið

  • 31.3.2023

Mál nr. S-59/2023

Birt: 8.3.2023

Fjöldi umsagna: 8

Áform um lagasetningu

Forsætisráðuneytið

Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuréttindi útlendinga og lögum um útlendinga

Niðurstöður

Niðurstöður samráðs kölluðu ekki á breytingar. Athugasemdum umsagnaraðila eru gerð skil í niðurstöðuskjali.

Málsefni

Áform um lagasetningu til þess að rýmka reglur um dvalar- og atvinnuréttindi útlendinga.

Nánari upplýsingar

Í stjórnarsáttmála Framsóknarflokksins, Sjálfstæðisflokksins og Vinstri hreyfingarinnar - Græns framboðs kemur m.a. fram að þátttaka fólks af erlendum uppruna auki fjölbreytileika, efli íslenskt samfélag og menningu og sé ein forsenda fyrir vexti efnahagslífsins. Þá er þar kveðið á um að tryggja verði að innflytjendur sem hér vilja búa og starfa fái tækifæri til aðlögunar og geti nýtt hæfileika sína, þekkingu og reynslu. Ein af aðgerðunum í stjórnarsáttmálanum er að lög um útlendinga verði tekin til endurskoðunar með það að markmiði að rýmka ákvæði er varða útgáfu dvalarleyfa á grundvelli atvinnuþátttöku og auka skilvirkni með einföldun ferla.

Áformin fela í sér breytingar sem gera þarf á lögum um útlendinga, nr. 80/2016, og lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002, til þess að stuðla að því sem fram kemur í stjórnarsáttmálanum og útfæra tillögur starfshóps um atvinnuréttindi útlendinga sem forsætisráðherra skipaði í nóvember sl. í því skyni. Markmiðið með áformunum er því að rýmka reglur um dvalar- og atvinnuréttindi útlendinga til þess að gera Ísland að eftirsóknarverðari og samkeppnishæfari kosti fyrir erlenda starfsmenn og nema, auka fjölbreytileika íslensks samfélags og um leið byggja undir áframhaldandi lífsgæði og velsæld til framtíðar. Þá er að því stefnt með breytingunum að styrkja stöðu innflytjenda á vinnumarkaði.

Með hliðsjón af framangreindu er því í fyrsta lagi lagt til að tímabundið atvinnuleyfi verði bundið við störf í tiltekinni atvinnugrein en ekki við tiltekið starf hjá atvinnurekanda. Í öðru lagi er lagt til að tiltekin dvalarleyfi verði lengd. Í þriðja lagi er lagt til að fjölskyldusameiningar verði heimilaðar vegna fleiri dvalarleyfa. Í fjórða lagi er lagt til að undanþága verði frá kröfu um tímabundið atvinnuleyfi fyrir maka sérfræðinga. Í fimmta lagi er lagt til að sjálfstæðum atvinnurekendum verði gefið færi á að fá atvinnuleyfi. Í sjötta lagi er lagt til að lengri umþóttunartími verði fyrir sérfræðinga til atvinnuleitar í kjölfar atvinnumissis. Loks í sjöunda lagi eru lögð til aukin réttindi til handa erlendum háskólanemum í tengslum við atvinnuleit og framfærsluviðmið.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Skrifstofa stjórnskipunar og stjórnsýslu

for@for.is