Til umsagnar
3.–13.3.2023
Í vinnslu
14.3.–7.5.2023
Samráði lokið
8.5.2023
Mál nr. S-53/2023
Birt: 3.3.2023
Fjöldi umsagna: 3
Drög að frumvarpi til laga
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Nýsköpun, rannsóknir og þekkingargreinar
Þrjár umsagnir bárust um frumvarpið, frá Félagi iðn- og tæknigreina, sameiginlega frá Rafiðnaðarsambandi Íslands, Samiðn, Matvís og VM – Félagi vélstjóra og málmtæknimanna sem og frá Samtökum iðnaðarins. Umsagnaraðilar höfðu höfðu verulegar athugasemdir við fyrirætlan um brottfall tiltekins sektarákvæðis í lögunum. Í ljósi athugasemdanna var fallist á að hverfa frá brottfalli sektarákvæðisins í 5. tölul. 1. mgr. 15. gr. laganna að sinni og taka það álitamál upp við heildarendurskoðun á lögum um handiðnað sem fyrirhuguð er.
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið kynnir drög að frumvarpi til breytinga á lögum um handiðnað, nr. 42/1978. Með frumvarpinu er útgáfa sveinsbréfa færð frá áðurnefndu ráðuneyti til sýslumanna.
Með frumvarpinu er útgáfa sveinsbréfa færð frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti til sýslumanna en verkefnið fellur vel að þeirri þjónustu sem sýslumenn veita í héraði.
Lög um handiðnað hafa að geyma heimild fyrir ráðherra til að fela öðrum útgáfu sveinsbréfa að fullnægðum skilyrðum laga en hafa ekki að geyma sérstaka grein um efni reglugerðar. Er því lagt til að lögfest verði ákvæði sem fer núorðið í flest frumvörp sem snúa að framkvæmd verkefna sýslumanna. Reikna má með að rafrænum umsóknum og afgreiðslum fari fjölgandi næstu árin og því er nauðsynlegt að lögfesta heimild til að fela einum sýslumanni framkvæmd verkefnanna fyrir landið allt.
Samhliða þeirri breytingu á lögum um handiðnað sem að ofan greinir er lagt til að 5. töluliður 15. gr. laga um handiðnað falli niður, en hann felur í sér sektarheimild. Umrætt ákvæði fellur að réttu lagi undir málefni framhaldsskólalaga og hefur seinni hluti þess reynst fámennum greinum og fámennum svæðum erfiður í framkvæmd.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa stefnumörkunar og alþjóðamála
hvin@hvin.is