Til umsagnar
2.–15.3.2023
Í vinnslu
16.3.2023–
Samráði lokið
Mál nr. S-52/2023
Birt: 2.3.2023
Fjöldi umsagna: 1
Drög að frumvarpi til laga
Innviðaráðuneytið
Samgöngu- og fjarskiptamál
Innviðaráðuneytið kynnir drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003. Með frumvarpinu eru m.a. lögð til ákvæði er varða tilkynningarskyldu og stjórnvaldssektir.
Með frumvarpinu eru lagðar til sjö breytingar:
Í fyrsta lagi er lagt til að mælt verði fyrir um að Vegagerðinni sé heimilt að fela Landhelgisgæslu Íslands að annast tiltekin verkefni vaktstöðvar siglinga. Þá verði henni jafnframt heimilt að gera þjónustusamning við annan eða aðra aðila um rekstur vaktstöðvar siglinga. Þetta er í samræmi við þá framkvæmd sem tíðkast hefur frá gildistöku laganna. Í dag er í gildi samningur Vegagerðarinnar við Neyðarlínuna um rekstur vaktstöðvarinnar. Þá hefur Neyðarlínan gert samkomulag við Landhelgisgæslu Íslands um þjónustu við framkvæmd samnings um vaktstöð siglinga.
Í öðru lagi er lagt til að bætt verði við 1. mgr. að markmið laganna sé að tryggja siglingavernd. Í þriðja lagi er lagt til að við ákvæði 1. mgr. sem fjallar um hlutverk vaktstöðvar siglinga bætist nýr stafliður um hlutverk stöðvarinnar við móttöku upplýsinga um úrgang og farmleifar skipa. Þessi ákvæði snúa að verkefnum sem vaktstöð siglinga annast nú þegar. Er því ekki verið að fela stöðinni nýtt hlutverk.
Í fjórða lagi er lögð til breyting á 2. mgr. þess efnis að ef tilkynning berst ekki frá skipi á reglulegum tíma eða ef vaktstöð siglinga berast upplýsingar sem gefa tilefni til að ætla að ástæða sé til eftirgrennslunar, leitar eða björgunar skipa í íslenskri lögsögu skuli hún þegar tilkynna Landhelgisgæslu Íslands um málið. Með þessu er verið að skýra lögin til samræmis við ákvæði annarra laga er varða leit og björgun.
Í fimmta lagi er lagt til að farþegaskip, 300 brúttótonn. eða stærri, sem sigla milli íslenskra hafna, skuli tilkynna vaktstöð siglinga um áætlaða leið að næstu höfn með tilteknum fyrirvara sem ákveðinn er í reglugerð. Landhelgisgæsla Íslands hefur bent á að farþegaskip, sem sigla milli hafna hér á landi, fari ekki ávallt beina leið að næstu höfn. Þau sigli í útsýnisferðum og hafi jafnvel viðkomu og hleypi farþegum í land án þess að leggja að höfn. Slíkar siglingar og viðkomur eru ekki tilkynningaskyldar samkvæmt lögum í dag og vaktstöðin veit fyrir vikið ekki ávallt um áætlanir þessara skipa sem getur valdið hættu.
Í sjötta lagi lagt til að sett verði ítarlegri heimild fyrir ráðherra til að mæla fyrir um tilkynningarskyldu skipa.
Loks er í sjöunda lagi lagt til að sett verði ákvæði er heimili álagningu stjórnvaldssekta fyrir tiltekin brot gegn fimm tilteknum ákvæðum laganna er varða tilkynningarskyldu og leiðsögu.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa samgangna
irn@irn.is