Til umsagnar
22.2.–10.3.2023
Í vinnslu
11.–26.3.2023
Samráði lokið
27.3.2023
Mál nr. S-41/2023
Birt: 22.2.2023
Fjöldi umsagna: 1
Drög að frumvarpi til laga
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Ein umsögn barst. Fjallað er um efni hennar og hvernig brugðist hafi verið við henni í 5. kafla í greinargerð með frumvarpi til laga um um breytingu á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, lögum um verðbréfasjóði og fleiri lögum (sala sjóða yfir landamæri, höfuðsjóðir og fylgisjóðir o.fl.) sem fjármála- og efnahagsráðherra lagði fyrir Alþingi í mars 2023 (880. mál á 153. löggjafarþingi).
Frumvarpinu er ætlað að innleiða efni tveggja Evrópugerða um sölu sjóða yfir landamæri og kveða á um heimildir til þess að reka sérhæfða sjóði fyrir almenna fjárfesta sem höfuðsjóði og fylgisjóði.
Meginefni frumvarpsins er lögfesting reglugerðar (ESB) 2019/1156 og lögfesting ákvæða tilskipunar (ESB) 2019/1160, sem breytir tilskipun 2009/65/EB um verðbréfasjóði og tilskipun 2011/61/ESB um rekstraraðila sérhæfðra sjóða í tengslum við sölu sjóða yfir landamæri.
Einnig eru lagðar til breytingar á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða til að þar verði kveðið á um heimildir til rekstrar sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta sem höfuðsjóði og fylgisjóði að uppfylltum sambærilegum kröfum og á við um verðbréfasjóði sem reknir eru sem höfuðsjóðir eða fylgisjóðir skv. XI. kafla laga um verðbréfasjóði.
Þá er lagt til að hámark á stjórnvaldssektir einstaklinga samkvæmt lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, nr. 45/2020, og lögum um evrópska áhættufjármagnssjóði og evrópska félagslega framtakssjóði, nr. 31/2022, verði hækkað úr 65 millj. kr. í 800 millj. kr. Er sú breyting til samræmis við það sem kveðið er á um í annarri löggjöf á fjármálamarkaði, svo sem lögum um verðbréfasjóði og lögum um markaði fyrir fjármálagerninga.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa fjármálamarkaðar
postur@fjr.is