Til umsagnar
21.2.–7.3.2023
Í vinnslu
8.3.–17.4.2023
Samráði lokið
18.4.2023
Mál nr. S-39/2023
Birt: 21.2.2023
Fjöldi umsagna: 6
Drög að frumvarpi til laga
Dómsmálaráðuneytið
Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála
Alls bárust sex umsagnir vegna frumvarps til breytinga á lögum um útlendinga (dvalarleyfi) og tók frumvarpið smávægilegum breytingum með tilliti til þeirra. Meginþorri athugasemda umsagnaraðila voru almenns eðlis og þótti ekki ástæða til að bregðast sérstaklega við þeim með breytingum á frumvarpinu. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 30. mars 2023.
Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016 (dvalarleyfi). Endurflutt að hluta.
Frumvarp þetta, sem samið er í dómsmálaráðuneytinu, kveður á um breytingar á lögum um útlendinga, nr. 80/2016, varðandi dvalarleyfi og málsmeðferð við synjun vegabréfsáritana. Frá gildistöku laganna hafa verið gerðar breytingar á lögunum nokkrum sinnum, þó ekki veigamiklar er snúa að dvalarleyfum, og er frumvarp þetta liður í nauðsynlegri endurskoðun laganna og felur í sér efnismeiri breytingar varðandi dvalarleyfi en gerðar hafa verið til þessa.
Frumvarpið er að hluta endurframlagt, en sumar breytingar þess voru síðast lagðar fram á 151. löggjafarþingi (þskj. 1029, 602. mál) en náðu ekki fram að ganga. Má þar nefna heimild fyrir útlendinga sem samþykktir hafa verið í doktorsnám við íslenskan háskóla til að dvelja hér á landi þegar þeir sækja um dvalarleyfi á þeim grundvelli skv. 65. gr. laganna, að ráðherra skuli setja í reglugerð nánari ákvæði um útlit og eiginleika dvalarleyfisskírteinis, ákvæði varðandi dvalarleyfi vegna skorts á starfsfólki rýmkuð og heimild til endurnýjunar til eins árs fyrir dvalarleyfishafa sem dvelja hér á landi vegna vistráðningar. Aðrar breytingartillögur í frumvarpi þessu hafa ekki verið lagðar fram áður og taka mið af þróun og framkvæmd málaflokksins.
Frumvarpinu er einkum ætlað að stuðla að gagnsærri og stöðugri framkvæmd laganna til hagsbóta fyrir umsækjendur um dvalarleyfi. Þær breytingar sem frumvarpið mælir fyrir um eru að mestu ívilnandi fyrir umsækjendur um dvalarleyfi og dvalarleyfishafa hérlendis.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa réttinda einstaklinga
dmr@dmr.is