Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 21.2.–6.3.2023

2

Í vinnslu

  • 7.3.2023–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-37/2023

Birt: 21.2.2023

Fjöldi umsagna: 8

Drög að frumvarpi til laga

Innviðaráðuneytið

Samgöngu- og fjarskiptamál

Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003 (gjaldtaka o.fl.)

Málsefni

Innviðaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003. Með frumvarpinu er lagðar til ýmsar breytingar á lögunum, m.a. um eldisgjald.

Nánari upplýsingar

Á 151. löggjafarþingi var mælt fyrir frumvarpi til breytinga á hafnalögum sem náði ekki fram að ganga. Frumvarpið hafði að geyma sum þeirra ákvæða sem finna má í frumvarpi þessu, þ. á m. um eldisgjald og heimild til rafrænnar vöktunar í höfnu. Jafnframt hafði frumvarpið að geyma ákvæði til innleiðingar á reglugerð (ESB) 2017/352 um að setja ramma um veitingu hafnarþjónustu og um sameiginlegar reglur um gagnsæi í fjármálum fyrir hafnir í íslenskan rétt. Innviðaráðuneytið hefur ákveðið að skipta efni þess frumvarps í tvennt, annars vegar þetta frumvarp og hins vegar frumvarp til innleiðingar á reglum sem leiða af EES-samningnum (sem mælt hefur verið fyrir á Alþingi – sjá 712. mál á 153. lögþ.).

Með frumvarpi þessu eru eftirfarandi breytingartillögur gerðar:

- Í fyrsta lagi lagt til að í hafnarreglugerð verði mælt fyrir um afmörkun tiltekinna hafnarsvæða, þ.e. þjónustusvæði, skipulagssvæði skv. 1. mgr. 5. gr., hafnarsvæði farþegaskipa, siglingasvæði og mengunarlögsaga. Eru jafnframt lagðar til skilgreiningar á þjónustusvæði, hafnarsvæði farþegaskipa og siglingasvæði.

- Í öðru lagi er lagt til að ákveðin verkefni verði færð frá Samgöngustofu til Vegagerðinnar.

- Í þriðja lagi er lagt til að lagt til að hafnalög mæli fyrir um rafræna vöktun í höfnum.

- Þá er í fjórða lagi lagt til nýtt ákvæði um eldisgjald, þ.e. gjald sem tekið er fyrir eldisfisk í sjókvíum, þar með talin eldisseiði, sem umskipað er, lestaður er eða losaður í höfnum.

- Í fimmta lagi er lagt til að gjaldskrárákvarðanir hafna verði kæranlegar til Samgöngustofu.

- Í sjötta lagi er lagt til að ákvæði laga um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003, um hafnsögu verði færð í hafnalög.

- Í sjöunda lagi er lagt til að Samgöngustofa hafi heimild til að mæla fyrir um aðgangsbann.

- Í áttunda lagi er lagt til að hafnir og aðrir aðilar, sem annast fermingu og affermingu búlkaskipa, skuli tilkynna Samgöngustofu um þá starfsemi.

- Loks er í níunda lagi lagt til að Landhelgisgæsla Íslands hafi heimild til að ákveða að skip skuli halda til skipaafdreps.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa samgangna

irn@irn.is