Til umsagnar
10.–20.2.2023
Í vinnslu
21.2.–9.3.2023
Samráði lokið
10.3.2023
Mál nr. S-32/2023
Birt: 10.2.2023
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Utanríkisráðuneytið
Utanríkismál
Engar umsagnir eða athugasemdir bárust um frumvarpsdrögin.
Frumvarpið felur í sér að lagabálkar sem kveða á um framkvæmd þjóðréttarsamninga um afvopnun, takmörkun vígbúnaðar og útflutningseftirlit verði sameinaðir í ein lög til að stuðla að samræmingu löggjaf
Í lagasafninu eru fjórir lagabálkar um framkvæmd fjögurra mismunandi alþjóðasamninga á sviði afvopnunar og takmörkunar vígbúnaðar. Lagabálkarnir eru allir byggðir upp á sambærilegan hátt og lítið hefur reynt á þá í framkvæmd. Í þeim er að jafnaði kveðið á um meginskuldbindingar samkvæmt viðkomandi samningi og eftirlit auk þess sem þeir innihalda reglugerðarheimild og refsiheimild. Æskilegra er að kveðið sé á um framkvæmd samninga um afvopnun og takmörkun vígbúnaðar í rammalöggjöf. Þannig skapast heildaryfirsýn yfir málaflokkinn og einfaldara verður að stuðla að samræmi reglugerðarheimilda, eftirlitsheimilda og refsiheimilda eftir því sem unnt er með hliðsjón af alþjóðlegum skuldbindingum.
Þá gilda lög um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu um annars vegar útflutningseftirlit með varnartengdum vörum og hins vegar útflutningseftirlit með hlutum með tvíþætt notagildi. Til að stuðla að skilvirkni í stjórnsýslunni, réttri innleiðingu alþjóðlegra skuldbindinga og til að skýra og einfalda umsóknarferli fyrir rekstraraðila er lagt til að eftirlit með varnartengdum vörum verði fært undir vopnalög, með frumvarpi til laga um breytingu á vopnalögum sem lagt verður fram á 153. löggjafarþingi, líkt og frumvarp þetta. Þannig yrði lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu leyfisveitandi vegna útflutnings varnartengdra vara, eftir atvikum að fenginni umsögn utanríkisráðuneytisins. Um leið er lagt til að ákvæði loftferðarlaga um hergagnaflutninga verði breytt líkt og nánar verður vikið að í greinargerð með frumvarpinu.
Með samþykkt frumvarpsins verður í einum lögum fjallað um alþjóðlegar skuldbindingar Íslands á sviði afvopnunar og takmörkunar vígbúnaðar og um útflutningseftirlit. Jafnframt verða sameinuð í ein heildarlög ákvæði sex núgildandi laga sem eru nátengd. Auk þeirra fjögurra laga um framkvæmd tiltekinna alþjóðasamninga og laga um eftirlit með hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu sem áður hafa verið nefnd eru lög nr. 90/1994 um réttindi eftirlitsmanna vegna samnings um hefðbundinn herafla í Evrópu og samnings um opna lofthelgi felld úr gildi með frumvarpinu. Frumvarpið felur því í sér tiltekt í gildandi lögum og lögfestingu samræmdar framkvæmdar afvopnunar, takmörkunar vígbúnaðar og útflutningseftirlits. Frumvarpið felur ekki í sér nýmæli að öðru leyti en því að styrkja og skýra framkvæmd samkvæmt núgildandi ákvæðum.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Laga- og stjórnsýsluskrifstofa
utn@utn.is