Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 10.–31.1.2023

2

Í vinnslu

  • 1.2.2023–18.8.2024

3

Samráði lokið

  • 19.8.2024

Mál nr. S-5/2023

Birt: 10.1.2023

Fjöldi umsagna: 1

Áform um lagasetningu

Heilbrigðisráðuneytið

Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála

Áform um lagasetningu - Breyting á lögum um landlækni og lýðheilsu (heilbrigðisskrár)

Niðurstöður

Frumvarpið var lagt fram á síðasta löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga.

Málsefni

Áformað er að leggja fram frumvarp um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu. Varða breytingar ákvæði um heilbrigðisskrár sem embætti landlæknis heldur.

Nánari upplýsingar

Heilbrigðisráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp um breytingu á lögum nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu, en frumvarpinu er ætlað að kveða á með ítarlegri hætti um efni 8. gr. laganna um heilbrigðisskrár. Samkvæmt gildandi lögum er heimilt að halda tilgreindar heilbrigðisskrár í þeim tilgangi að afla þekkingar um heilsufar og heilbrigðisþjónustu, hafa eftirlit með þjónustunni, tryggja gæði hennar og meta árangur þjónustunnar, ásamt því að nota þær við gerð áætlana um gæðaþróun í heilbrigðisþjónustunni og vísindarannsóknum. Síðasta áratug hafa miklar framfarir orðið í tækniþróun í heilbrigðiskerfinu og þörf á að uppfæra núgildandi ákvæði um heilbrigðisskrár til samræmis við þá þróun. Eru áform um að skilgreina frekar tilgang og markmið heilbrigðisskráa, kveða á um grunnskrár heilbrigðisþjónustu, meðferðartengdar heilbrigðisskrár, heilbrigðisskrár sem byggja á samþykki einstaklinga og gæðaskrár. Þá eru áform um að veita ráðherra skýrari heimild til að kveða á um heilbrigðisskrár sem heimilt er að halda í reglugerð, án þess að lagabreytingu þurfi til, auk þess sem áformað er að yfirfara ákvæði um persónugreinanlegar heilbrigðisskrár m.t.t. persónuverndar.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Skrifstofa innviða heilbrigðisþjónustu

hrn@hrn.is