Til umsagnar
5.–19.1.2023
Í vinnslu
20.1.–20.2.2023
Samráði lokið
21.2.2023
Mál nr. S-1/2023
Birt: 5.1.2023
Fjöldi umsagna: 1
Áform um lagasetningu
Dómsmálaráðuneytið
Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála
Ein umsögn barst vegna áforma um breytingu á útlendingalögum (dvalarleyfi) og verður umsögnin tekin til skoðunar við vinnslu frumvarps. Þegar drög að frumvarpinu eru tilbúin verða þau sett í Samráðsgátt og óskað umsagna.
Áform um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016 (dvalarleyfi). Endurflutt að hluta.
Við framkvæmd á lögum um útlendinga nr. 80/2016, sem tóku gildi 1. janúar 2017, hefur komið í ljós að lagfæra, endurskoða og breyta þarf einstaka ákvæðum þeirra varðandi útgáfu dvalarleyfa, svo sem vegna starfa sem krefjast sérfræðiþekkingar, vegna skorts á starfsfólki og vegna vistráðningar. Áformað er að leggja fram frumvarp til að breyta þessum ákvæðum en fyrirhugað er að flestar breytingarnar verði ívilnandi fyrir umsækjendur um dvalarleyfi og dvalarleyfishafa. Frumvarpið er liður í því að styrkja og bæta gæði við úrvinnslu umsókna um dvalarleyfi.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa réttinda einstaklinga
dmr@dmr.is