Til umsagnar
9.12.2022–6.1.2023
Í vinnslu
7.1.–21.2.2023
Samráði lokið
22.2.2023
Mál nr. S-245/2022
Birt: 9.12.2022
Fjöldi umsagna: 1
Áform um lagasetningu
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Ein umsögn barst. Gildi-lífeyrissjóður leggur til að fjármálaráðuneytið hugi samtímis að því að rýmka fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða að því er varðar fylgisjóði sem fjárfestingarkost skv. 6. og 7. mgr. 36. gr. c. laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997. Ráðuneytið tekur afstöðu til umsagnarinnar í samráðskafla í drögum að lagafrumvarpi. Drög að frumvarpi hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.
Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til breytinga á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða og lögum um verðbréfasjóði og fleiri lögum.
Með frumvarpinu verða reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2019/1156 og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2019/1160 um dreifingu sjóða um sameiginlega fjárfestingu yfir landamæri innleiddar í íslenskan rétt.
Markmiðið með gerðunum er að auðvelda dreifingu sjóða yfir landamæri með því að draga úr laga- og reglubundnum hindrunum í tengslum við slíka markaðsetningu, en á sama tíma að gæta að fjárfestavernd. Umræddar hindranir felast í landsbundnum kröfum vegna markaðssetningar, kostnaði og gjöldum hjá stjórnvöldum og kröfum um tilkynningar. Með því að fjarlægja þessar hindranir ætti kostnaður að minnka fyrir markaðssetningu yfir landamæri, sem ætti að flýta fyrir vexti slíkrar dreifingar innan EES og auka samkeppni og fjölga fjárfestingartækifærum fyrir fjárfesta innan EES.
Í frumvarpinu verða einnig lagðar til breytingar á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, nr. 45/2020, til að þar verði kveðið á um heimildir fyrir því að sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjárfesta verði reknir sem höfuðsjóðir og fylgisjóðir, til samræmis við það sem gildir um verðbréfasjóði.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa fjármálamarkaðar
postur@fjr.is