Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 22.12.2022–12.1.2023

2

Í vinnslu

  • 13.1.–7.5.2023

3

Samráði lokið

  • 8.5.2023

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-241/2022

Birt: 22.12.2022

Fjöldi umsagna: 0

Áform um lagasetningu

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Samgöngu- og fjarskiptamál

Áform um lagasetningu - breyting á lögum nr. 70/2022 um fjarskipti og lögum nr. 54/2021 um íslensk landshöfuðlén

Niðurstöður

Drög að frumvarpi voru kynnt í samráðsgátt 24. febrúar 2023 (mál 43/2023)

Málsefni

Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 70/2022 um fjarskipti og lögum nr. 54/2021 um íslensk landshöfuðlén.

Nánari upplýsingar

Á fáum sviðum er viðvarandi jafn hröð tækniþróun og raun ber vitni og á sviði fjar-skipta og netöryggis. Fjarskipti gegna lykilhlutverki í nútímasamfélagi og eru grundvöllur fyrir þjónustu á mörgum öðrum sviðum og því er sérstaklega mikilvægt að huga að því að öll umgjörð sé eins og best verður á kosið.

Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á lögum um fjarskipti, nr. 70/2022, og lögum um íslensk landshöfuðlén nr. 54/2021. Tilgangur þessara breytinga er þríþættur.

Í fyrsta lagi er þörf á nýju ákvæði í fjarskiptalög um opinn aðgang að fjarskiptanetum sem notið hafa ríkisaðstoðar, viðmið um verðlagningu slíkra neta og heimild Fjarskiptastofu til að skera úr um ágreining þar að lútandi sem og heimild stofnunarinnar til að veita undanþágu frá kröfu um að heildsöluaðgangur skuli byggja á verðsamanburði ef fyrirhuguð nýting á fjarskiptanetinu mun ekki standa undir slíku heildsöluverði.

Í öðru lagi til þess að tryggja lagastoð vegna innleiðingar reglna sem stafa af alþjóðlegum skuldbindingum Íslands á sviði fjarskipta, í samræmi við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993. Um er að ræða innleiðingu á reglugerð (EB) 2021/1232. Í reglugerðinni er kveðið á um undanþágur frá reglum um fjarskiptaleynd, til að gera rafrænum þjónustuaðilum tímabundið kleift að vakta hvort umferð um þeirra kerfi hefur að geyma barnaníðsefni, en þróaður hefur verið sérhæfður sjálfvirkur hugbúnaður í því skyni.

Í þriðja lagi er um að ræða breytingu á lögum um íslensk landshöfuðlén (lénalögum), einnig með það að markmiði að auka getu til að sporna við netglæpum, þar á meðan kynferðislegu ofbeldi gegn börnum. Með þessum breytingum er leitast við að auðvelda lögreglu að takast á við glæpi á netinu, með því að skerpa á heimildum lögreglu og verklagsreglum milli lögreglu og skráningarstofu íslenskra léna.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Skrifstofa framkvæmdar og eftirfylgni

hvin@hvin.is