Til umsagnar
5.–27.9.2024
Í vinnslu
28.9.–7.10.2024
Samráði lokið
8.10.2024
Mál nr. S-219/2022
Birt: 6.9.2024
Fjöldi umsagna: 2
Drög að reglugerð
Dómsmálaráðuneytið
Almanna- og réttaröryggi
Ein efnisleg umsögn barst um málið frá Persónuvernd. Í umsögninni var fjallað um kostnaðarauka hjá stofnuninni með innleiðingu kerfisins og auknum skyldum og vísað í því samhengi til umsagna Persónuverndar við frumvarp til laga um landamæri.
Ráðgert er að komu- og brottfararkerfið (Entry/Exit System) verði tekið í gagnið í nóvember 2024 og reglugerð þessi taki gildi á sama tíma.
Með reglugerð þessari er innleidd reglugerð (ESB) 2017/2226 um komu- og brottfararkerfið með svokallaðri tilvísunaraðferð þar sem þýðing á reglugerð (ESB) 2017/2226 er birt sem fylgiskjal við reglugerðina sjálfa sem telur tíu ákvæði og kveður á um nánari útfærslu á reglunum miðað við aðstæður og kerfið hér á landi. Er m.a. kveðið á um lögbær yfirvöld í skilningi reglugerðarinnar, ábyrgð ríkislögreglustjóra þegar kemur að kerfinu , miðlæga aðgangsstöð og vinnslu persónuupplýsinga.
Komu- og brottfararkerfið verður sett upp á öllum ytri landamærastöðvum Schengen-svæðisins og mun halda rafræna skráningu um komur og brottfarir ríkisborgara þriðju ríkja sem heimiluð hefur verið stutt dvöl á svæðinu en einnig þá sem synjað hefur verið um komu til stuttrar dvalar. Kerfið reiknar þannig sjálfvirkt út tímalengd dvalar ríkisborgara þriðju ríkja á Schengen-svæðinu og er ætlað að bæta frekar stjórnun ytri landamæranna, koma í veg fyrir ólöglega fólksflutninga og auðvelda eftirlit með ferðum ríkisborgara þriðju ríkja til alls Schengen-svæðisins. Komu- og brottfararkerfið ætti, einkum og þegar við á, að stuðla að því að bera megi kennsl á einstaklinga sem uppfylla ekki, eða uppfylla ekki lengur, skilyrði um lengd heimilaðrar dvalar á yfirráðasvæði aðildarríkjanna. Kerfið kemur til með að nútímavæða og einfalda landamæraeftirlit, m.a. með því að koma í stað þeirrar skyldu landamæravarða að stimpla vegabréf ríkisborgara þriðju ríkja um komur og brottfarir, og með því næst samhæfð yfirsýn allra Schengen-ríkjanna yfir þá sem dvelja á Schengen-svæðinu fram yfir heimilaða dvöl.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa almanna- og réttaröryggis
dmr@dmr.is