Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 11.–21.11.2022

2

Í vinnslu

  • 22.11.2022–10.7.2024

3

Samráði lokið

  • 11.7.2024

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-217/2022

Birt: 11.11.2022

Fjöldi umsagna: 1

Drög að frumvarpi til laga

Forsætisráðuneytið

Æðsta stjórnsýsla

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands

Niðurstöður

Ein umsögn barst frá Seðlabanka Íslands.Tekið er undir þá afmörkun á ákvörðunum fjármálaeftirlitsnefndar sem lögð er til í 1. mgr. 2. gr. frumvarpsins um breytingu á 15. gr. laga nr. 92/2019, um Seðlabanka Íslands. Bankinn gerir athugasemd við tillögur að nýjum málsliðum sem fela í sér hefðbuindnar eftirlitsákvarðanir sem heyri undir rekstur bankans. Um niðurstöðu má nánar lesa í frumvarpinu sem samþykkt var á 153. löggjafarþingi, https://www.althingi.is/altext/153/s/0683.html

Málsefni

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019. Breytingarnar snúa að meginstefnu til að fjármálaeftirlitsnefnd Seðlabankans.

Nánari upplýsingar

Í gildandi lögum um Seðlabanka Íslands er kveðið á um að fjármálaeftirlitsnefnd taki allar ákvarðanir sem faldar eru Fjármálaeftirlitinu í lögum. Einnig er kveðið á um að nefndin geti framselt vald sitt til töku ákvarðana sem ekki teljast meiri háttar til varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits. Í skýrslu úttektarnefndar sem forsætisráðherra skipaði í júní 2021 til að annast úttekt á reynslunni af starfi nefnda Seðlabanka Íslands er bent á að með þessu fyrirkomulagi sé flækjustig aukið í rekstri og samskiptum við eftirlitsskylda aðila og að betur færi á því að Seðlabankanum væri falið í lögum að taka ákvarðanir á sviði fjármálaeftirlits. Þá var gerð athugasemd við hið umfangsmikla valdaframsal til varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits. Einnig kemur fram að rétt væri að afmarka þær ákvarðanir sem lagðar eru fyrir fjármálaeftirlitsnefnd og er lögð fram sú tillaga að ákvarðanir verði takmarkaðar við refsikennd viðurlög og íþyngjandi stjórnsýsluákvarðanir.

Í ljósi framangreindra ábendinga eru í frumvarpinu að finna tillögur að breytingum á lögum um Seðlabanka Íslands sem einkum lúta að því að Seðlabanki Íslands taki að meginstefnu þær ákvarðanir sem faldar eru Fjármálaeftirlitinu í lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum, en að fjármálaeftirlitsnefnd taki eða hafi aðkomu í tilteknum tegundum veigameiri mála, sem að meginstefnu fela í sér beitingu stjórnsýsluviðurlaga og þvingunarúrræða.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Skrifstofa stefnumála

for@for.is