Til umsagnar
27.10.–10.11.2022
Í vinnslu
11.11.2022–20.7.2023
Samráði lokið
21.7.2023
Mál nr. S-205/2022
Birt: 27.10.2022
Fjöldi umsagna: 4
Drög að frumvarpi til laga
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Vinnumarkaður og atvinnuleysi
Drög að frumvarpi voru birt í samráðsgátt stjórnvalda 27. október 2022). Alls bárust fjórar umsagnir í gáttina frá Alþýðusambandi Íslands, Bændasamtökum Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Samtökum iðnaðarins. Eru niðurstöður samráðs reifaðar í 5. kafla frumvarpsins sem lagt var fram á Alþingi í janúar 2023 og samþykkt sem lög 28. mars 2023.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um atvinnuréttindi útlendinga (sérhæfð þekking)
Frumvarp þetta er samið í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu í samstarfi við háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðuneytið í því skyni að mæta þeim áherslum sem fram koma í sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hvað varðar þau áhersluatriði að auka svigrúm og skilvirkni við ráðningu erlendra sérfræðinga og að auðvelda íslenskum nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum að ráða fólk með sérþekkingu frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins.
Lagt er til að í nýrri 3. mgr. 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga verði kveðið á um heimild Vinnumálastofnunar til að veita tímabundið atvinnuleyfi samkvæmt ákvæðinu vegna starfa sem krefjast sérhæfðrar þekkingar sem tímabundinn skortur er á hér á landi. Ákvæðinu er þannig ætlað að ná til starfa sem ekki krefjast tiltekinnar sérfræðiþekkingar í formi háskóla-, iðn-, list- eða tæknimenntunar sem viðurkennd er hér á landi en krefjast þess þó að sá einstaklingur sem gegni því starfi sem um ræðir hverju sinni búi yfir sérhæfðri þekkingu sem tímabundinn skortur er á hér á landi. Gert er ráð fyrir að þau störf sem um ræði kunni meðal annars að vera á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni eða annarra starfsgreina þar sem störf kunna að krefjast sérhæfingar sem þó telst ekki sérfræðiþekking í skilningi gildandi laga. Í þessu sambandi er jafnframt gert ráð fyrir að ráðherra birti í reglugerð lista yfir störf sem krefjast sérhæfðrar þekkingar sem tímabundinn skortur er á hér á landi og falla undir hina nýju 3. mgr. ákvæðisins. Er í því sambandi við það miðað að þau störf sem um ræðir falli undir ÍSTARF21 sem er viðurkennt flokkunarkerfi byggt á alþjóðlegri starfaflokkun. Er þannig gert ráð fyrir að í reglugerð verði birtur listi yfir tiltekin störf sem við eiga hverju sinni og að ráðherra skuli á að minnsta kosti tólf mánaða fresti óska eftir tillögum að breytingum á reglugerðinni frá hlutaðeigandi stofnunum og hagsmunasamtökum.
Þá er lagt til að umsækjendur um tímabundin atvinnuleyfi þurfi ekki lengur að afla umsagna stéttarfélaga í öllum tilvikum en þess í stað er gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun skuli afla umsagnar stéttarfélags eða landssambands launafólks í hlutaðeigandi starfsgrein að því marki sem stofnunin telur nauðsynlegt í því skyni að staðreyna að fyrirliggjandi ráðningarsamningur tryggi laun og önnur starfskjör til jafns við heimamenn í samræmi við gildandi lög og kjarasamninga þar um.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa vinnumarkaðar
frn@frn.is