Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 27.10.–10.11.2022

2

Í vinnslu

  • 11.–30.11.2022

3

Samráði lokið

  • 1.12.2022

Skjöl til samráðs

Fylgiskjöl

Mál nr. S-204/2022

Birt: 27.10.2022

Fjöldi umsagna: 2

Drög að frumvarpi til laga

Atvinnuvegaráðuneytið

Sjávarútvegur og fiskeldi

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (afnám tegundatilfærslu í deilistofnum botnfisks o. fl.)

Niðurstöður

Í umsögnum kom fram bæði stuðningur og andstaða við að dregið sé úr sveigjanleika fiskveiðistjórnarkerfisins. Ráðuneytið tekur fram að það er markmið frumvarpsins að draga úr sveigjanleikanum er varðar tegundatilfærslu deilistofa botnfisks, sem er í tegundunum gullkarfi og grálúða. Þá má segja að verið sé að lögfesta heimild til færslu á aflamarki skipa í deilistofnum uppsjávartegunda (kolmunna, makríl og norsk-íslenskri síld) á milli ára. Umsagnir leiddu til breytinga á frumvarpi er varðar uppsetningu ákvæða og hlutfalls heimildar til færslu og umframveiði milli ára.

Málsefni

Lögð er til breyting á 11. gr. laga um stjórn fiskveiða sem varðar afnám tegundatilfærslu í deilistofnum botnfisks og einnig heimild til færslu aflamarks og veiði tiltekinna tegunda milli ára.

Nánari upplýsingar

Lagt er til að breyta ákvæði um tegundatilfærslu deilistofna botnfisks í 1. mgr. 11. gr. laganna þannig að heimildin gildi ekki um þá stofna. Þessari leið er ætlað að skila þeim árangri að ekki verði hægt að nýta sveigjanleika í aflamarkskerfinu hvað varðar deilistofna botnsfisks. Þá er lagt til að sömu heimildir gildi fyrir hryggleysingja og deilistofna uppsjávartegunda (norsk-íslenskrar síldar, kolmunna og makríls) og gildir um aðra nytjastofna sjávar þegar kemur að færslu aflamarks milli ára til sveiflujöfnunar, í 3. og 4. mgr. 11. gr. laganna.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa sjávarútvegs

mar@mar.is