Til umsagnar
23.10.–13.11.2022
Í vinnslu
14.11.2022–2.2.2025
Samráði lokið
3.2.2025
Mál nr. S-202/2022
Birt: 23.10.2022
Fjöldi umsagna: 10
Drög að frumvarpi til laga
Innviðaráðuneytið
Húsnæðis- og skipulagsmál
Frumvarp til breytinga á skipulagslögum (framboð hagkvæms húsnæðis) var auglýst í samráðsgátt stjórnvalda dagana 23.október - 13. nóvember 2022. Alls bárust 11 umsagnir frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg, Reykjanesbæ, Öryrkjabandalagi Íslands, BSRB, Hagsmunasamtökum heimilanna, Þroskahjálp, Samtökum atvinnulífsins og samtökum iðnaðarins, BYGG, Íþöku ehf. og Skipulagsstofnun.
Athuga ber að frestur lengdur, ákv. lagað skv. ábendingu. Lagðar eru til breytingar á skipulagsl. til að stuðla að aukningu á uppbyggingu íbúða á viðráðanlegu verði í samræmi við þörf.
Frumvarpsdrögin fela í sér breytingar á skipulagslögum sem innleiða svokallað „Carlsberg-ákvæði“ inn í íslenskan rétt að danskri fyrirmynd. Ákvæðið, verði það að lögum, tryggir sveitarfélögum heimildir til að gera kröfu um allt að 25% af byggingarmagni samkvæmt nýju deiliskipulagi fyrir tilgreint svæði skuli vera fyrir hagkvæmar íbúðir, leiguíbúðir eða aðrar íbúðir sem njóta stuðnings ríkis og/eða sveitarfélaga, hvort sem eigandi lands er sveitarfélag, ríki eða einkaaðili. Þrátt fyrir að um heimildarákvæði sé að ræða þá auðveldar það sveitarfélögum að geta sett þetta skilyrði í deiliskipulag í stað þess að þurfa að semja um skilyrðið.
Frumvarpið er einn liður í aðgerðaráætlun fyrir árin 2022 til 2026 sem finna má í viðauka við rammasamning innviðaráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um húsnæðisuppbyggingu, sem undirritaður var 12. júlí 2022. Rammasamninginn má finna í viðhengi
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa húsnæðis- og skipulagsmála
irn@irn.is