Til umsagnar
20.10.–4.11.2022
Í vinnslu
5.–18.11.2022
Samráði lokið
19.11.2022
Mál nr. S-199/2022
Birt: 20.10.2022
Fjöldi umsagna: 6
Drög að frumvarpi til laga
Atvinnuvegaráðuneytið
Sjávarútvegur og fiskeldi
Í umsögnum kom m.a. fram að stækkun krókaaflamarksbáta gæti leitt til fækkunar þeirra og samþjöppunar aflaheimilda og áhyggjur að farið yrði á svig við reglur um slíkra orkugjafa. Nauðsynlegt væri að gagnsæi væri um setningu regluverks, um kröfur til hönnunar skipa og búnaðar. Frumvarpið nær til stærri skipa með lægra kolefnisspor, ekki um auknar veiðiheimildir. Eftirlit með skilyðum veiðileyfa verður hjá Fiskistofu. Bætt hefur verið í frumvarpið nánari upptalning á vistvænum orkugjöfum skv. greininni. Einnig er heimild fyrir ráðherra að heimila aðra vistvæna orkugjafa með lágu kolefnisspori.
Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, er varða leyfilega stærð krókaaflamarksbáta sem nýta sér vistvæna orkugjafa.
Í lögum um stjórn fiskveiða er 2. mgr. 4. gr. stærðartakmörkun fyrir báta til að öðlast veiðileyfi með krókaaflamarki. Í lögunum kemur fram að þeir bátar einir geti öðlast veiðileyfi með krókaaflamarki sem eru styttri en 15 metrar að mestu lengd og minni en 30 brúttótonn. Í frumvarpinu er lögð til ný málsgrein í 4. gr. um að bátar sem nota vistvæna orkugjafa hafi heimild til að vera stærri en gildandi lög setja takmörkun um, þar sem slíkir bátar gera kröfu um aukið rými fyrir orkuinnihald, þ.e. stærri tanka eða rými fyrir rafhlöðu. Enn fremur þarf að huga að öryggi áhafnar ef notast er við eldfima orkugjafa og krefjast öryggisráðstafanir aukins rýmis í bátunum. Er því lagt til að krókaaflamarksbátum sem gangi að minnsta kosti til helminga fyrir vistvænum orkugjöfum verði heimilt að vera 50% stærri, eða 45 brúttótonn, en þeir bátar sem nú geta öðlast leyfi til veiða með krókaaflamarki.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa sjávarútvegs
mar@mar.is