Til umsagnar
4.–19.10.2022
Í vinnslu
20.–23.10.2022
Samráði lokið
24.10.2022
Mál nr. S-184/2022
Birt: 4.10.2022
Fjöldi umsagna: 1
Áform um lagasetningu
Atvinnuvegaráðuneytið
Sjávarútvegur og fiskeldi
Ein umsögn barst í umsagnarferli um áform um lagasetningu, frá Landssambandi smábátaeigenda, einkum um upplýsingar sem óskað er eftir í greinargerð. Mikið af upplýsingum liggur þegar fyrir í ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og á vef Fiskistofu. Að öðru leyti verður tekið mið af umsögninni við samningu frumvarps, eftir því sem við á.
Áform um bann við tegundatilfærslu deilistofna botnfisks í 1. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006, auk þess að setja hámark varðandi flutning aflamarks í deilistofnum og öðrum nytjastofnum milli ára.
Áformað er að leggja til breytingu á lögum um stjórn fiskveiða þess efnis að sveigjanleiki í tegundatilfærslu nái ekki milli deilistofna botnfisks (þ.á m. gullkarfa og grálúðu). Jafnframt að leggja til ákvæði um flutning á aflamarki deilistofna og annarra nytjastofna milli ára.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa sjávarútvegs
mar@mar.is