Til umsagnar
3.10.–4.11.2022
Í vinnslu
5.–7.11.2022
Samráði lokið
8.11.2022
Mál nr. S-183/2022
Birt: 3.10.2022
Fjöldi umsagna: 3
Áform um lagasetningu
Atvinnuvegaráðuneytið
Sjávarútvegur og fiskeldi
Þrjár umsagnir bárust á umsagnartíma, frá Strandveiðifélagi Íslands, Landssambandi smábátaeigenda og Útgerðarfélagi Reykjavíkur hf. Almennt var fagnað áformum um heildstætt viðurlagakerfi. Þá komu fram sjónarmið um nauðsyn þess að skilgreina hvað séu tengdir aðilar og að hugtakið raunveruleg yfirráð sé afmarkað betur sem varðar framkvæmd reglna um hámarksaflahlutdeild. Einnig komu fram sjónarmið um varúð við breytingu á reglum m.t.t. afturvirkra áhrifa o. fl. Unnið verður úr innsendum umsögnum. Verði frumvarp til laga lagt fram mun það áður verða birt í samráðsgátt til frekari athugasemda.
Áformað er að leggja til breytingu á ákvæðum er varða viðurlög við brotum á lögum fiskveiðistjórnar og ákvæðum sem varða tengda aðila í sjávarútvegi.
Áformað er að leggja til að komið verði á fót heildstæðu viðurlagakerfi vegna brota á helstu lögum á sviði fiskveiðistjórnar; á lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, og nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands. Þá er áformað að leggja til að hugtakið raunveruleg yfirráð við framkvæmd reglna um hámarksaflahlutdeild og tengda aðila verði afmarkað nánar.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa sjávarútvegs
mar@mar.is