Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 6.–24.10.2022

2

Í vinnslu

  • 25.10.–21.11.2022

3

Samráði lokið

  • 22.11.2022

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-182/2022

Birt: 6.10.2022

Fjöldi umsagna: 3

Drög að frumvarpi til laga

Dómsmálaráðuneytið

Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála

Breytingar á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og lögum um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi

Niðurstöður

Þrjár umsagnir bárust um frumvarpsdrögin við kynningu í samráðsgátt. Umsagnirnar leiddu til þess að ákveðin atriði voru áréttuð í athugasemdum við 2., 3. og 5. gr. frumvarpsdraganna. Gerð er grein fyrir helstu atriðum umsagnanna og viðbrögðum við þeim í niðurstöðuskjali og í frumvarpinu sem er lagt fram á Alþingi.

Málsefni

Markmið frumvarpsins er að einfalda og bæta málsmeðferð hjá Persónuvernd auk þess sem lagðar eru til breytingar sem þykja nauðsynlegar að fenginni reynslu af framkvæmd persónuverndarlöggjafarinnar.

Nánari upplýsingar

Lagðar eru til eftirfarandi breytingar á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga:

i. Heimilt verði að víkja frá upplýsinga- og aðgangsrétti skráðra einstaklinga en einungis að því marki sem hagsmunir þeirra þar að lútandi þykja eiga að víkja fyrir mun ríkari almannahagsmunum og sem nauðsynlegt þykir með vísan til tilgreindra hagsmuna.

ii. Persónuvernd geti beitt dagsektum samkvæmt lögunum án aðkomu stjórnar og við bætist heimild fyrir stofnunina til að beita dagsektum þegar ekki er orðið við beiðnum hennar um aðgang að upplýsingum, gögnum og húsnæði vegna eftirlitsstarfa sinna.

iii. Persónuvernd verði ekki lengur skylt að rannsaka og úrskurða um allar kvartanir sem henni berast en skal upplýsa kvartanda um framvindu og niðurstöður máls og um heimild hans til að bera ákvarðanir og málsmeðferð stofnunarinnar undir dómstóla. Auk þess verði áréttaður réttur aðila máls til að bera ákvarðanir og málsmeðferð Persónuverndar undir dómstóla.

iv. Heimilt verði að mæla fyrir um í gjaldskrá ráðherra að vinnsluaðilar greiði gjald sem hlýst af eftirliti Persónuverndar, eins og ábyrgðaraðilar samkvæmt lögunum eins og þau eru nú.

Þá er lagt til að í lög nr. 75/2019 um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi verði sett heimild fyrir ráðherra til að setja gjaldskrá sem mælir fyrir um gjald sem ábyrgðar- og vinnsluaðilar skulu greiða vegna eftirlits Persónuverndar, sem og við úttekt á starfsemi við undirbúning vinnsluleyfis eða annarrar afgreiðslu.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (2)

Umsjónaraðili

Skrifstofa réttinda einstaklinga

dmr@dmr.is