Til umsagnar
23.9.–7.10.2022
Í vinnslu
8.10.2022–8.7.2026
Samráði lokið
9.7.2026
Mál nr. S-174/2022
Birt: 23.9.2022
Fjöldi umsagna: 6
Drög að frumvarpi til laga
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Örorka og málefni fatlaðs fólks
Frumvarpið var birt í samráðsgátt stjórnvalda 23. september 2022 (mál nr. S-174/2022) og var helstu hagsmunaaðilum gert viðvart um birtingu frumvarpsins. Ráðuneytinu bárust alls sex umsagnir um frumvarpið. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 15. nóvember 2022.
Frumvarp um breytingu á lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007. Í frumvarpinu er lagt til að greiðslutímabil endurhæfingarlífeyris verði lengt úr þremur árum í fimm ár.
Frumvarpið inniheldur fyrsta skref í átt að nýju greiðslu- og þjónustukerfi vegna starfsgetumissis. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á 7. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, með síðari breytingum, hvað varðar greiðslur endurhæfingarlífeyris. Er annars vegar lagt til að greiðslutímabil endurhæfingarlífeyris verði lengt þannig að tímabilið verði allt að 36 mánuðir í stað 18 mánaða samkvæmt gildandi lögum og hins vegar að heimild til að framlengja greiðslutímabil endurhæfingarlífeyris verði lengd úr 18 mánuðum í 24 mánuði. Þannig er gert ráð fyrir að tímabil endurhæfingarlífeyris verði allt að fimm ár í stað þriggja ára samkvæmt gildandi lögum. Jafnframt er lagt til það skilyrði fyrir framlengingu greiðslna að endurhæfing með aukna atvinnuþátttöku að markmiði sé enn metin raunhæf og því gert ráð fyrir auknum kröfum um framvindu endurhæfingar og áherslu á endurkomu viðkomandi á vinnumarkað.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa félags- og lífeyrismála
agust.thor.sigurdsson@frn.is