Til umsagnar
23.8.–7.9.2022
Í vinnslu
8.9.2022–25.8.2024
Samráði lokið
26.8.2024
Mál nr. S-151/2022
Birt: 23.8.2022
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um vátryggingastarfsemi (búsetuskilyrði stjórenda) voru birt í samráðsgátt stjórnvalda 23. ágúst 2022. Frestur til að skila umsögnum var til 7. september 2022. Engar umsagnir bárust.
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvari til breytinga á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002 og lögum um vátryggingastarfsemi nr. 100/2016 (Búsetuskilyrði stjórenda).
Í frumvarpinu er lagt til að ríkisborgarar ríkja sem eru aðilar að EES-samningnum eða stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu og Færeyja verði undanþegnir búsetuskilyrðum til stjórnarmanna og framkvæmdastjóra fjármálafyrirtækja og vátryggingafélaga. Ríkisborgarar þessara ríkja munu því ekki þurfa að vera búsettir á Evrópska efnahagssvæðinu eða í OECD ríki til að geta verið stjórnarmenn í fjármálafyrirtækjum og vátryggingafélögum. Að sama skapi munu framkvæmdastjórar ekki þurfa að vera búsettir á Evrópska efnahagssvæðinu til að geta starfað sem slíkir í sömu fyrirtækjum.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Hjörleifur Gíslason
hjorleifur.gislason@fjr.is