Til umsagnar
23.8.–6.9.2022
Í vinnslu
7.–18.9.2022
Samráði lokið
19.9.2022
Mál nr. S-150/2022
Birt: 23.8.2022
Fjöldi umsagna: 7
Drög að frumvarpi til laga
Forsætisráðuneytið
Nýsköpun, rannsóknir og þekkingargreinar
Forsætisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð. Frumvarpið felur í heildarendurskoðun á lögum nr. 2/2003 um Vísinda- og tækniráð.
Markmið nýs fyrirkomulags, sem kynnt er í frumvarpi þessu, er að efla stefnumótun og samhæfingu á sviði vísinda, tækniþróunar og nýsköpunar hér á landi svo styrkja megi íslenskt þekkingarsamfélag og auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Er það gert með heildrænni nálgun á málaflokkinn, skýrari hlutverkum helstu aðila og öflugri sjálfstæðri gagnagreiningu, ásamt eftirfylgni og auknu samstarfi og samhæfingu á milli ráðuneyta.
Frumvarpið byggir á vinnu verkefnishóps forsætisráðherra um endurskoðun lagaumhverfis Vísinda- og tækniráðs en ekki hafa verið gerðar breytingar á yfirstjórn málaflokksins eða hlutverki ráðsins frá því það var sett á laggirnar árið 2003. Frumvarpið tekur jafnframt mið af þeim umsögnum sem um tillögur verkefnishópsins bárust í umsagnarferli í Samráðsgátt stjórnvalda haustið 2020. Tillaga verkefnishópsins er aðgengileg í fylgiskjali til hægri hér á síðunni.
Meðal þeirra breytinga sem lagðar eru til í frumvarpinu er að gert er ráð fyrir að ný lögbundin ráðherranefnd um vísindi og nýsköpun hafi skýrt stefnumótandi hlutverk og gefi út samræmda stefnu um vísindi, nýsköpun og tækni ásamt aðgerðaáætlun. Samhliða ráðherranefnd er í frumvarpinu lagt til að starfi Vísinda- og nýsköpunarráð sem skipað sé af forsætisráðherra til fjögurra ára í senn. Í því sitji níu fulltrúar með þekkingu og reynslu á málefnasviðinu. Ráðið verði sjálfstætt í sínum störfum, spyrji áleitinna spurninga um stöðu mála og komi jafnvel með róttækar hugmyndir að breytingum. Ráðið verði smærra en nú er, skipað til lengri tíma á grundvelli tillagna tilnefningarnefndar. Önnur lykilbreyting í frumvarpi þessu er að stuðningur við starf Vísinda- og nýsköpunarráðs og ráðherranefndar um vísindi og nýsköpun sé stutt af sérfræðingum innan þess ráðuneytis sem fer með málefni málefni vísinda, tækniþróunar og nýsköpunar sem greini stöðu málaefnasviðsins og styrki þannig grunn stefnumótunar.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa stefnumála
for@for.is