Til umsagnar
4.7.–15.8.2022
Í vinnslu
16.2022–25.8.2024
Samráði lokið
26.8.2024
Mál nr. S-113/2022
Birt: 4.7.2022
Fjöldi umsagna: 1
Áform um lagasetningu
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Ein umsögn barst. Arion banki gerði athugasemd við að áformin geri ekki ráð fyrir sams konar undanþágu frá búsetuskilyrðum stjórnarmanna og framkvæmdastjóra í lífeyrissjóðum. Telur bankinn að slík breyting á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, sé bæði sanngjörn og eðlileg. Þegar litið er til sérstöðu lífeyrissjóðanna sem vörsluaðila mikilla fjármuna í eigu almennings og þeirra tafa sem breytingar á lögum nr. 129/1997 gætu haft á frumvarpið þykir ekki heppilegt að leggja til slíkar breytingar á þeim lögum að svo stöddu.
Áformað er að leggja til breytingar á búsetuskilyrðum stjórnenda í lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um vátryggingastarfsemi þannig að komið verði til móts við athugasemdir frá ESA.
Lagt verður til að ríkisborgarar ríkja sem eru aðilar að EES-samningnum eða stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu og Færeyja verði undanþegnir búsetuskilyrðum til stjórnarmanna og framkvæmdastjóra fjármálafyrirtækja og vátryggingafélaga. Ríkisborgarar þessara ríkja munu því ekki þurfa að vera búsettir á Evrópska efnahagssvæðinu eða í OECD ríki til að geta verið stjórnarmenn í fjármálafyrirtækjum og vátryggingafélögum. Að sama skapi munu framkvæmdastjórar ekki þurfa að vera búsettir á Evrópska efnahagssvæðinu til að geta starfað sem slíkir í sömu fyrirtækjum.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Hjörleifur Gíslason
hjorleifur.gislason@fjr.is