Til umsagnar
7.7.–20.8.2022
Í vinnslu
21.–31.8.2022
Samráði lokið
1.9.2022
Mál nr. S-108/2022
Birt: 7.7.2022
Fjöldi umsagna: 3
Annað
Innviðaráðuneytið
Sveitarfélög og byggðamál
Tillaga að svæðisskipulagi fyrir Austurland til ársins 2044 var birt til kynningar og athugasemda í samráðsgátt stjórnvalda frá 7. júlí 2022 til 20. ágúst 2022. Öllum var frjálst að senda inn umsagnir og var þeim skilað rafrænt í samráðsgáttinni eða með tölvupósti á verkefnastjóra Austurbrúar. Nánari upplýsingar um Svæðisskipulag Austurlands 2022-2044 og tillöguna sjálfa er að finna á austurbru.is/svaedisskipulag/
Tillaga að svæðisskipulagi fyrir Austurland til ársins 2044 er hér með birt til kynningar og athugasemda í samráðsgátt stjórnvalda en hún er líka aðgengileg á vef Austurbrúar.
Tillaga að svæðisskipulagi fyrir Austurland til ársins 2044 er hér með birt til kynningar og athugasemda í samráðsgátt stjórnvalda en hún er líka aðgengileg á vef Austurbrúar.
Í tillögunni er sett fram sameiginleg stefna sveitarfélaganna í landshlutanum á sviði umhverfis, efnahags, samfélags og menningar með það að markmiði að Austurland verði æ betra til búsetu, atvinnu og ferðalaga.
Öllum er frjálst að senda inn umsagnir og þeim skal skila inn rafrænt hér í samráðsgáttinni eða á netfangið svaedisskipulag@austurbru.is fyrir 20. ágúst 2022.
Auglýsing tillögunnar og tilheyrandi umhverfismatsskýrslu er á grundvelli 24. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 15. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Nánari upplýsingar um Svæðisskipulag Austurlands 2022-2044 er að finna á austurbru.is
Svæðisskipulagsnefnd SSA
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Jóna Árný Þórðardóttir
svaedisskipulag@austurbru.is