Til umsagnar
18.–26.3.2022
Í vinnslu
27.3.2022–
Samráði lokið
Mál nr. S-65/2022
Birt: 18.3.2022
Fjöldi umsagna: 6
Drög að frumvarpi til laga
Forsætisráðuneytið
Sveitarfélög og byggðamál
Frumvarpsdrögin miða að því að veita Reykjavíkurborg heimild til að setja á fót nefnd til að kanna starfsemi vöggustofa fyrir börn sem reknar voru í Reykjavík á síðustu öld.
Lagt er til að veitt verði lagaheimild fyrir Reykjavíkurborg til að setja á fót nefnd til að kanna starfsemi vöggustofu fyrir börn sem rekin var af Thorvaldsensfélaginu á árunum 1960–1979 og vöggustofu fyrir börn sem rekin var að Hlíðarenda á árunum 1949–1963. Mælt er fyrir um hvert markmið slíkrar könnunar sé og hvernig nefndin hagi störfum sínum. Þar á meðal um aðgang að gögnum í vörslu stjórnvalda sem varða starfsemi vöggustofanna, skýrslutökur fyrir nefndinni og aðra upplýsingaöflun hennar. Þá er mælt fyrir um að upp¬lýsingalög gildi ekki um starfsemi slíkrar nefndar.
Markmið lagasetningarinnar er að gera Reykjavíkurborg kleift að fá greinargóða lýsingu á starf¬semi umræddra vöggustofa, staðreyna eins og kostur er hvort og þá í hvaða mæli börn sem vistuð voru á vöggustofunum hafi sætt illri meðferð eða ofbeldi meðan á dvölinni stóð og loks að fyrir liggi tillögur um frekari viðbrögð ef ástæða þykir til.
Höfð er hliðsjón af lögum um skipun nefndar til að kanna starfsemi vist- og meðferðar¬heimila fyrir börn sem sett voru árið 2007 og eru fallin úr gildi. Þá er einnig höfð hliðsjón af lög¬um um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum fyrir fötluð börn.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir. Þátttakendum í þessu samráðsferli var þó heimilt að óska eftir því að efni umsagnar og nafn sendanda birtist ekki í gáttinni.
Skrifstofa löggjafarmála
postur@for.is