Til umsagnar
11.–24.3.2022
Í vinnslu
25.3.–10.4.2022
Samráði lokið
11.4.2022
Mál nr. S-61/2022
Birt: 11.3.2022
Fjöldi umsagna: 2
Drög að frumvarpi til laga
Atvinnuvegaráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Frumvarpsdrögin voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda 11. - 24. mars 2022. Tvær umsagnir bárust um frumvarpið. Umfjöllun um umsagnirnar og viðbrögð við þeim má finna í samráðskafla frumvarpsins. Frumvarpið hefur verið lagt fram á Alþingi (586. þingmál á 152. löggjafarþingi), sjá nánar um þinglega meðferð málsins á vef Alþingis: https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/?ltg=152&mnr=586
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 82/2019 en tillögurnar fela í sér sérstök úrræði til að koma fram skiptum eða slitum á lögaðilum sem ekki hafa sinnt skráningarskyldu skv. lögunum
Með frumvarpinu er lagt til að tvö ný bráðabirgðaákvæði bætist við lög um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019, þar sem kveðið verði á um
sérstök úrræði til að koma fram skiptum eða slitum á lögaðilum sem er skylt að tilkynna um raunverulega eigendur til fyrirtækjaskrár samkvæmt lögunum en hafa ekki sinnt þeirri skyldu samkvæmt lögunum. Tillögur frumvarpsins felast að meginstefnu til í skilvirkari úrræðum fyrir ríkisskattstjóra til að koma fram skiptum eða slitum á skráningarskyldum aðilum sem hafa vanrækt skráningarskyldu samkvæmt gildandi lögum.
Í a-lið 1. gr. frumvarpsins, sem lagt er til að verði að ákvæði til bráðabirgða II, er að finna sérreglur um aðgerðir ríkisskattstjóra í aðdragandanum, þ.e. um að skora á aðila að sinna skráningarskyldu að því viðlögðu að krafist verði skipta á þeim fyrir dómi eftir reglum 6.–8. mgr. 17. gr. laganna, ellegar slita á þeim eftir sérstakri málsmeðferð sem fjallað er um í b-lið 1. gr. frumvarpsins.
Í b-lið 1. gr. frumvarpsins, sem lagt er til að verði að ákvæði til bráðabirgða III, er mælt fyrir um skjótvirkari málsmeðferð fyrir dómstólum til að koma fram slitum á tilteknum skráningarskyldum aðilum sem skirrast við að fullnægja skyldu um að tilkynna ríkisskattstjóra um raunverulega eigendur sína. Um er að ræða sérreglur um slitameðferð sem eru bundnar við afmarkaðan hóp skráningarskyldra aðila sem hafa lítil sem engin fjárhagsleg umsvif.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa viðskipta og fjölmiðla
mvf@mvf.is