Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 8.–21.3.2022

2

Í vinnslu

  • 22.3.2022–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-59/2022

Birt: 8.3.2022

Fjöldi umsagna: 6

Drög að frumvarpi til laga

Innviðaráðuneytið

Samgöngu- og fjarskiptamál

Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003

Málsefni

Innviðaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003.

Nánari upplýsingar

Með frumvarpi þessu verða í fyrsta lagðar til lagabreytingar til innleiðingar á ákvæðum reglugerðar (ESB) 2017/352 um að setja ramma um veitingu hafnarþjónustu og um sameiginlegar reglur um gagnsæi í fjármálum fyrir hafnir. Reglugerðin nær til hafna sem eru hluti af samevrópska flutninganetinu. Breytingar þessar snúa m.a. að setja ákvæði um það þegar annar aðila en höfn býður upp á þjónustu í höfnum, möguleika hafnar eða lögbærs yfirvalds til að gera lágmarkskröfur til utanaðkomandi aðila til að bjóða upp á þjónustu við skip eða heimildir til að takmarka fjölda þeirra sem bjóða upp á þessa þjónustu og að hafnarstjórn ráðfæri sig við notendur hafna við álagningu gjalda. Þá verður lögð til heimild fyrir hafnir til að horfa til umhverfissjónarmiða við gjaldtöku. Mun sú heimild ná til allra hafna hér á landi.

Í öðru lagi er lagt til ákvæði um gjaldtöku hafna vegna fiskeldisstarfsemi. Er lagagrundvöllur slíkrar gjaldtöku talinn óskýr samkvæmt gildandi lögum. Hefur gjaldtakan grundvallast á e-lið 1. tölul. 2. mgr. 17. gr. hafnalaga um aflagjöld og hefur framkvæmd við gjaldtöku verið mismundandi eftir sveitarfélögum.

Í þriðja lagi er lagt til ákvæði um viðmið sem horfa skuli til við afmörkun hafnarsvæða á sjó samkvæmt hafnarreglugerðum. Er í ákvæðinu vísað til landfræðilegra þátta sem og lóðspunkta eða annarra þátta sem tengjast starfsemi hafna.

Í fjórða lagi er lagt til ákvæði um rafræna vöktun í höfnum. Er talin þörf á ákvæði þessa efnis til að vinnsla persónuupplýsinga byggist á viðhlítandi lagastoð en ekki er að finna ákvæði þessa efnis í hafnalögum.

Í fimmta lagi verður lögð til breyting á 27. gr. hafnalaga um stjórnsýslukærur þannig að gjaldskrárákvarðanir verði kæranlegar til Samgöngustofu.

Í sjötta lagi eru lögð til ákvæði um hafnsögu. Eru lagt til að þessi ákvæði færist úr III. kafli laga um vakstöð siglinga, nr. 41/2003. Þá er lögð til breytingu á lögum nr. 41/2003 þannig að ákvæði um hafnsögu falli brott úr þeim lögum.

Loks eru í sjöunda lagi lagðar til breytingar á verkaskiptingu Samgöngustofu og Vegagerðarinnar á sviði hafnamála, m.a. er lýtur að eftirliti með hönnun og byggingu hafnarmannvirkja, sbr. 6. gr. laganna, og upplýsingar um hafnir, sbr. 9. gr. laganna.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Skrifstofa samgangna

irn@irn.is