Til umsagnar
4.–18.3.2022
Í vinnslu
19.3.–16.8.2022
Samráði lokið
17.8.2022
Mál nr. S-56/2022
Birt: 4.3.2022
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Engar umsagnir bárust um málið.
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar áform um breytingar á ýmsum lögum á fjármálamarkaði ásamt frumvarpsdrögum.
Áformin fela í sér innleiðingu á sex Evrópugerðum sem allar varða viðskipti á fjármálamörkuðum.
Helstu fyrirhugaðar breytingar frá gildandi rétti:
1. Breytingar á lögum um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
a. Gildissvið reglna um hámörk á stöður er þrengt með þeim hætti að nú nær það aðeins til landbúnaðarhárvöruafleiðna og veigamikilla og mikilvægra hrávöruafleiðna sem eru í viðskiptum á viðskiptavettvangi og OTC-samninga sem hafa sömu efnahagslegu áhrif.
b. Nýjar undanþágur eru kynntar til sögunnar frá reglum um hámörk á stöður fyrir verðbréfaðar afleiður og stöður sem stafa frá viðskiptum sem framkvæmd eru til að uppfylla skyldur til að veita seljanleika. Auk þess er kveðið á um nýja, takmarkaða undanþágu vegna áhættuvarna (e. hedging) fyrir ófjárhagslega aðila innan almennrar viðskiptasamstæðu (e. predominantly commercial group).
c. Þremur framseldum reglugerðum ESB er veitt lagagildi. Þær fela í sér smávægilegar breytingar á framseldri reglugerð ESB 2017/565, sem er veitt lagagildi í 3. gr. laganna, hvað varðar 1) hvað telst viðskipti fyrir eigin reikning (reglugerð ESB 2017/2294), 2) viðmiðunarmörk fyrir vikulegar stöðutilkynningar vegna staðna í afleiðuviðskiptum (reglugerð ESB 2021/527) og 3) ákveðin skilyrði sem þarf að uppfylla til að fá markaðastorg fjármálagerninga skráð sem vaxtarmarkað fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki (reglugerð ESB 2019/1011).
2. Breytingar á lögum um markaðssvik, nr. 60/2021, og lögum um lýsingu verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, nr. 14/2020.
- Með breytingunum er verið að draga úr ýmsum formkröfum til vaxtarmarkaða, og þar af leiðandi kostnaði við slíka skráningu, á sama tíma og gætt er að heilleika (e. integrity) markaðarins og fjárfestavernd.
3. Breytingar á lögum um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði, nr. 24/2017, og lögum um lánshæfismatsfyrirtæki, nr. 50/2017.
- Um er að ræða smávægilegar breytingar á ákvæðum um upplýsingagjöf lögbærra yfirvalda, hér á landi Seðlabanka Íslands, til Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar (ESMA) og Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunarinnar (EIOPA).
4. Breytingar á lögum um yfirtökur, nr. 108/2007.
- Í frumvarpinu er lagt til að nokkrar greinar laganna sem eiga ekki lengur við verði felldar brott.
Nánari efnisumfjöllun er að finna í 2. og 3. kafla greinargerðar meðfylgjandi frumvarpsdraga.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa fjármálamarkaðar
gudmundur.karason@fjr.is