Til umsagnar
4.–18.3.2022
Í vinnslu
19.3.2022–
Samráði lokið
Mál nr. S-55/2022
Birt: 4.3.2022
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Innviðaráðuneytið
Samgöngu- og fjarskiptamál
Innviðaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi um breytingu á lögum um vaktstöð siglinga, nr. 61/2003. Frestur til að veita umsögn er til og með 18. mars 2022.
Með frumvarpinu eru lagðar til fernar breytingar:
Í fyrsta lagi er lagt til að mælt verði fyrir um að Vegagerðinni sé heimilt að gera þjónustusamning um rekstur vaktstöðvar siglinga við einn eða fleiri aðila. Í dag er í gildi samningur Vegagerðarinnar við Neyðarlínuna um rekstur vaktstöðvarinnar. Þá hefur Neyðarlínan gert samkomulag við Landhelgisgæslu Íslands um þjónustu við framkvæmd samnings um vaktstöð siglinga. Lagt er til að 3. mgr. 2. gr. breytist þannig að lögin endurspegli þessa framkvæmd.
Í öðru lagi er lagt til að mælt verði fyrir um upphæð árgjalds fyrir þátttöku í sjálfvirka tilkynningakerfinu í lögum og að það verði 14.000 kr. Í dag er í gildi auglýsing nr. 265/2016 um gjaldskrá vaktstöðvar siglinga. Samkvæmt henni er árgjaldið 10.500. kr. Með hækkun árgjaldsins er stefnt að því að gjaldið haldi í við verðlagsbreytingar.
Í þriðja lagi er lagt til að farþegaskip, 300 brúttótonn. eða stærri, sem sigla milli íslenskra hafna, skuli tilkynna vaktstöð siglinga um áætlaða leið að næstu höfn með tilteknum fyrirvara sem ákveðinn er í reglugerð. Landhelgisgæsla Íslands hefur bent á að farþegaskip, sem sigla milli hafna hér á landi, fari ekki ávallt beina leið að næstu höfn. Þau sigli í útsýnisferðum og hafi jafnvel viðkomu og hleypi farþegum í land án þess að leggja að höfn. Slíkar siglingar og viðkomur eru ekki tilkynningaskyldar samkvæmt lögum í dag og vaktstöðin veit fyrir vikið ekki ávallt um áætlanir þessara skipa sem getur valdið hættu.
Loks er í fjórða lagi lagt til að lögin hafi að geyma tilvísun til hlutverks á sviði siglingaverndar í markmiðsákvæði laganna.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa samgangna
irn@irn.is