Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 2.–13.3.2022

2

Í vinnslu

  • 14.3.–21.6.2022

3

Samráði lokið

  • 22.6.2022

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-51/2022

Birt: 2.3.2022

Fjöldi umsagna: 2

Drög að frumvarpi til laga

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja o.fl. (fjármögnun skilasjóðs, iðgjöld og fyrirkomulag TIF)

Niðurstöður

Frumvarpið var lagt fram á Alþingi og samþykkt sem lög.

Málsefni

Fjármála- og efnahagsráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til breytingar á lögum nr. 70/2020 og lögum nr. 98/1999 (fjármögnun skilasjóðs, iðgjöld og fyrirkomulag TIF)

Nánari upplýsingar

Tilskipun 2014/59/ESB (BRRD) er nú þegar fullinnleidd hér á landi að undanskildum fjórum greinum, þ.e. 103-106. gr. tilskipunarinnar, sem fjalla um fjármögnun og lánamál skilasjóðs. Í frumvarpinu er lagðar til breytingar á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020, til innleiðingar á eftirstandandi ákvæðum tilskipunarinnar. Samhliða þeirri innleiðingu eru lagðar til breytingar á greiðslum iðgjalda í innstæðudeild TIF og nokkrum öðrum atriðum í lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, nr. 98/1999, vegna innbyrðis tengsla milli innstæðutrygginga, þ.m.t. starfsemi TIF, og skilameðferðar, þ.m.t. skilasjóði.

Eftirfarandi eru meðal helstu breytinga:

• Lagt er til að fjármunir verði færðir úr innstæðudeild TIF í skilasjóð þannig að stærð sjóðanna eftir tilfærslu verði hlutfallslega sú sama og milli lögbundinna lágmarka þeirra samkvæmt Evrópureglum, þ.e. 0,8% og 1%. Með þessu er átt við að skilasjóður verði stærri en innstæðutryggingasjóður sem nemur 25%. Lagt er til að 26,3 ma.kr. verði færðir úr innstæðudeild í skilasjóð en sú fjárhæð miðast við stöðu tryggðra innstæðna og eignir innstæðudeildar og skilasjóðs 31.12.2021.

• Kveðið er á um greiðslur framlaga í skilasjóð en skýrt tekið fram að framlög verði ekki innheimt nema eignir skilasjóðs fari undir lögbundið lágmark sjóðsins sem er 1% af tryggðum innstæðum allra lánastofnana með starfsleyfi hér á landi. Þá er lagt til að reglugerðum (ESB) 2015/63 og 2016/1434 sem fjalla um greiðslur framlaga í skilasjóð verði veitt lagagildi með frumvarpinu en ekki mun reyna á ákvæði reglugerðanna nema hafist verði handa við af safna framlögum í skilasjóð.

• Lagt er til að greiðslur iðgjalda í innstæðudeild verði stöðvaðar að svo stöddu. Lagt er til að ráðherra verði árlega upplýstur með skriflegum hætti um afstöðu stjórnar Tryggingarsjóðs vegna fjármálafyrirtækja til greiðslna í sjóðinn og gert er ráð fyrir því að innheimta á iðgjöldum verði hafin að nýju ef slíkt þykir nauðsynlegt.

• Lagt er til að sjálfseignastofnunin Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta (TIF) fái nýtt heiti sem verði Tryggingarsjóður vegna fjármálafyrirtækja. Nýtt heiti er talið endurspegla betur starfsemi stofnunarinnar eftir þær breytingar sem kveðið er á um í frumvarpinu.

• Lagt er til að Tryggingarsjóður vegna fjármálafyrirtækja verði rekinn í þremur aðskildum deildum: innstæðudeild, verðbréfadeild og skilasjóður.

• Lagt er til að stjórnarmönnum í TIF verði fækkað úr sex í fjóra og stjórnin fari jafnframt með umsýslu skilasjóðs. Lagt er til að Samtök fjármálafyrirtækja tilnefni einn, Seðlabanki Íslands einn en ráðherra skipi tvo án tilnefningar og verði annar þeirra formaður.

• Lagt er til að nokkur ákvæði sem talin eru úrelt í lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta verði felld brott. Þau helstu eru ákvæði sem heimilar ráðherra að afturkalla starfsleyfi aðildarfyrirtækis verðbréfadeildar sem ekki uppfyllir skyldur sínar samkvæmt lögunum, ákvæði um heimild sjóðsins til að veita aðildarfyrirtækjum víkjandi lán og loks ákvæði um heimildir viðskiptabanka og sparisjóða til að stofna sérstaka öryggissjóði

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Hjörleifur Gíslason

hjorleifur.gislason@fjr.is