Til umsagnar
23.2.–11.3.2022
Í vinnslu
12.3.–10.4.2022
Samráði lokið
11.4.2022
Mál nr. S-43/2022
Birt: 23.2.2022
Fjöldi umsagna: 1
Drög að frumvarpi til laga
Atvinnuvegaráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Frumvarpsdrögin voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda 23. febrúar - 11. mars 2022. Ein umsögn barst um frumvarpið frá Samtökum fjármálafyrirtækja. Umfjöllun um umsögnina og viðbrögð við henni má finna í samráðskafla frumvarpsins. Frumvarpið hefur verið lagt fram á Alþingi, sjá nánar um þinglega meðferð málsins á vef Alþingis: https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/?ltg=152&mnr=585
Í frumvarpinu eru m.a. lagðar til breytingar á lögum um hlutafélög sem varða boðun hluthafafunda skráðra félaga og breytingar á lögum um ársreikninga sem varða skil ársreikninga á rafrænu formi.
Í frumvarpinu er í fyrsta lagi að finna tillögur að breytingum á lögum um hlutafélög þar sem félögum þar sem hlutir hafa verið teknir til viðskipta á skipulegum markaði er heimilað að ákveða í samþykktum sínum tiltekin atriði er varða hluthafafundi.
Í öðru lagi eru lagðar til breytingar á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög þess efnis að þegar um er að ræða félag sem þegar hefur verið afskráð samkvæmt heimild í lögunum þá sé hlutafélagaskrá heimilt að krefjast skipta á félaginu að liðnu ári frá afskráningu enda hafi þá ekki borist beiðni um að félagið verði skráð á nýjan leik.
Í þriðja lagi eru lagðar til nokkrar breytingar á lögum um ársreikninga en m.a. er lagt til að ársreikningum skuli skila á rafrænu formi en gert er ráð fyrir að breytingin komi til framkvæmda fyrir reikningsár sem hefst 1. janúar 2021 eða síðar.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa viðskipta og fjölmiðla
mfv@mvf.is