Til umsagnar
22.2.–8.3.2022
Í vinnslu
9.3.2022–
Samráði lokið
Mál nr. S-40/2022
Birt: 22.2.2022
Fjöldi umsagna: 3
Drög að frumvarpi til laga
Dómsmálaráðuneytið
Almanna- og réttaröryggi
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á tilteknum ákvæðum laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 140/2018. Meginefni frumvarpsins er fjórþætt:
Í fyrsta lagi eru lagðar til breytingar á ákvæðum laganna um sýndarfé. Breytingarnar lúta einkum að skilgreiningum á sýndarfé og þjónustuveitendum sýndarfjár, sbr. 2. og 3. gr. laga nr. 140/2018, skráningarskyldu þjónustuveitenda sýndarfjár, sbr. 35. gr. laganna og skilyrðum varðandi áreiðanleikakönnun um upplýsingar sem þurfa að fylgja með viðskiptum með sýndarfé. Þá eru lagðar til breytingar á 8. gr. laganna um fjárhæðarmörk þegar kemur að áreiðanleikakönnun vegna viðskipta með sýndareignir.
Í öðru lagi eru lagðar til afmarkaðar breytingar á nokkrum ákvæðum laganna með hliðsjón af þeirri reynslu sem orðin er af framkvæmd þeirra. Er þar fyrst og fremst um að ræða breytingar á 5. gr. laganna sem fjallar um áhættumat tilkynningarskyldra aðila, en þær breytingar sem lagðar eru til á nefndu ákvæði lúta einkum að:
- nánari útfærslu á þeirri kröfu um gerð áhættumats sem gerð er til tilkynningarskyldra aðila,
- áréttingu á muninum á áhættumati á rekstri tilkynningarskyldra aðila annars vegar og viðskiptum þeirra og samningssamböndum hins vegar, m.a. með uppskiptingu ákvæðisins því til samræmis,
- frekari skýringum á því hvað fjallað skuli um í áhættumati, m.a. með því að telja upp tiltekin atriði sem þar eiga að koma fram.
Í sama tilgangi verða gerðar minniháttar breytingar á 10. og 11. gr. laganna, til skýringar á kröfum um könnun á áreiðanleika viðskiptamanna og staðfestingu á upplýsingum þar um og 13. gr. laganna til skýringar á því hvað felst í aukinni áreiðanleikakönnun. Þá verða gerðar orðalagsbreytingar á 14., 18., 33. og 34. gr. Vísast til athugasemda við þær greinar varðandi nánari umfjöllun þar um.
Í þriðja lagi eru lagðar til breytingar til að bregðast við athugasemdum sem ESA gerði í kjölfar áðurnefndrar úttektar sinnar á innleiðingu fjórðu peningaþvættistilskipunarinnar (2015/849/EB) hér á landi. Lúta þær annars vegar að því að skilgreina hugtökin „rafeyri“, „samningssamband“ og „samstæður“ sérstaklega í 3. gr. laganna og hins vegar að leiðréttingum á ákvæðum 9. og 27. gr. laganna til samræmis við orðalag og efniskröfur fjórðu peningaþvættistilskipunarinnar (2015/849/EB).
Þá eru í fjórða lagi lagðar til breytingar á tilteknum ákvæðum í viðurlagakafla laganna. Lúta þær breytingar fyrst og fremst að því að árétta að umrædd ákvæði laganna eiga einnig við um önnur viðurlög heldur en stjórnvaldssektir, en núgildandi ákvæði eru óskýr þar um. Vísast að öðru leyti til umfjöllunar um nauðsyn þeirra breytinga í 2. kafla frumvarpsins hér að framan, svo og til athugasemda með þeim greinum frumvarpsins sem að þessu snúa.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa almanna- og réttaröryggis
postur@dmr.is