Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 21.2.–7.3.2022

2

Í vinnslu

  • 8.3.2022–3.11.2025

3

Samráði lokið

  • 4.11.2025

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-39/2022

Birt: 21.2.2022

Fjöldi umsagna: 6

Drög að frumvarpi til laga

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfismál

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011

Niðurstöður

Frumvarpið var lagt fram á Alþingi á 152. löggjafarþingi. Sjá niðurstöður samráðs í 5. kafla greinargerðar á eftirfarandi slóð: https://www.althingi.is/altext/152/s/0825.html Frumvarpið var samþykkt sem lög frá Alþingi 15. júní 2022.

Málsefni

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun þannig að stækkanir á virkjunum sem þegar er í rekstri verði undanskildar ferli rammaáætlunar.

Nánari upplýsingar

Í frumvarpinu er lögð til sú breyting á 3. mgr. 3. gr. laga um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011, að stækkanir á virkjunum sem ekki hafa áhrif á óröskuð svæði þurfi ekki að fara í gegnum málsmeðferð rammaáætlunar. Telja verður að með því að undanskilja stækkanir á virkjunum því ferli sem lög nr. 48/2011 kveða á um verði hægt að hraða aflaukningu þeirra virkjana sem þegar eru í rekstri á landsvæðum sem búið er að taka ákvörðun um að heimila virkjanarekstur á. Þannig er hægt að auka orkuvinnslu í landinu og stuðla að hraðari orkuskiptum eins og markmið er um.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa landgæða

sigridur.svana.helgadottir@urn.is