Til umsagnar
24.2.–10.3.2022
Í vinnslu
11.3.–19.4.2022
Samráði lokið
20.4.2022
Mál nr. S-34/2022
Birt: 24.2.2022
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Drög að frumvarpi til laga um peningamarkaðssjóði voru birt í samráðsgátt stjórnvalda 24. febrúar 2022. Frestur til að skila umsögnum var til 10. mars 2022. Engar umsagnir bárust.
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til innleiðingar í íslenskan rétt á reglugerð (ESB) 2017/1131 um peningamarkaðssjóði (MMF).
Frumvarpið felur í sér ný heildarlög um peningamarkaðssjóði. Meginefni frumvarpsins er því lögfesting reglugerðarinnar um peningamarkaðssjóði og nauðsynlegra ákvæða þar að lútandi, svo sem um hvernig eftirlit fari fram, um heimildir eftirlitsaðila til upplýsingaöflunar, viðurlagaákvæði og heimildir til setningar stjórnvaldsfyrirmæla.
Í reglugerðinni er m.a. kveðið á um skilyrði þess að mega reka peningamarkaðssjóði, svo sem reglur um staðfestingu sjóðanna, fjárfestingarstefnur og þær þrjár tegundir peningamarkaðssjóða sem heimilt er að reka, þ.e. peningamarkaðssjóð með fast innra virði sem fjárfestir í skuldum hins opinbera, peningamarkaðssjóð með lítið flökt í innra virði og peningamarkaðssjóð með breytilegt innra virði. Einnig eru ákvæði um verðmat á eignum sjóðanna og áhættustýringu, upplýsingagjöf til fjárfesta og til eftirlitsstofnana og um að Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin (hér eftir ESMA) geti nýtt allar þær heimildir sem hún hefur samkvæmt UCITS-tilskipuninni og AIFMD. Þá er kveðið á um að utanaðkomandi stuðningur við peningamarkaðssjóði sé óheimill, t.d. greiðslur inn í sjóðina, kaup á eignum sjóðanna og annað þess háttar.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa fjármálamarkaðar
postur@fjr.is