Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 7.–18.2.2022

2

Í vinnslu

  • 19.2.2022–6.4.2026

3

Samráði lokið

  • 7.4.2026

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-32/2022

Birt: 7.2.2022

Fjöldi umsagna: 2

Drög að frumvarpi til laga

Innviðaráðuneytið

Hagskýrslugerð og grunnskrár

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001 (Mannvirkjaskrá)

Niðurstöður

Við frumvarpsdrögin bárust tvær umsagnir. Frumvarpið tók miklum breytingum eftir umsagnarferlið svo sem sjá má á frumvarpinu sem lagt var fram. Sjá link hér að neðan.

Málsefni

Innviðaráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til umsagnar. Fyrirhugaðar breytingar eru nauðsynlegar til að greiða götu nýrrar mannvirkjarskrár hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Nánari upplýsingar

Vorið 2021 fór af stað verkefni sem snýst um að byggja upp nýja mannvirkjaskrá hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Verkefnið er hluti af stærra viðfangsefni sem lýtur að því að til verði áreiðanlegar rauntímaupplýsingar um mannvirkjagerð, tegundir fasteigna, notkunarsvið og stöðuna á húsnæðismarkaði með rekstri nútímalegra gagnagrunna. Þannig er stefnt að því til lengri tíma að öll byggingastig fasteigna verði samviskusamlega færð inn í grunninn sem verður opinn en einnig meiriháttar viðhaldsframkvæmdir á eldri byggingum, svo sem lagnaviðgerðir unnar að fagmönnum, meiriháttar þakviðgerðir o.s.frv. Til stóð að leggja fram frumvarp til að setja lagastoð undir mannvirkjaskrá, setja á fót fagráð og gera aðrar nauðsynlegar breytingar samanber áform nr. 230/2021 hér í samráðsgáttinni. Við nánari greiningu kom í ljós að lagastoðin var til staðar bæði fyrir mannvirkjaskránna og fagráðið. Með þeim frumvarpsdrögum sem hér eru lögð fram til umsagnar er því aðeins lagðar til lágmarksbreytingar á lögum um skráningu og mat fasteigna til að greiða götu mannvirkjarskrár hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Sveitarfélaga og byggðamála

irn@irn.is