Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 23.12.2021–10.1.2022

2

Í vinnslu

  • 11.1.–14.7.2022

3

Samráði lokið

  • 15.7.2022

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-242/2021

Birt: 23.12.2021

Fjöldi umsagna: 0

Drög að frumvarpi til laga

Heilbrigðisráðuneytið

Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála

Skimunarskrá

Niðurstöður

Ráðherra mælti fyrir frumvarpinu á 152. löggjafarþingi og var það samþykkt 9. júní 2022 sem lög nr. 43/2022.

Málsefni

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007 (skimunarskrá) sem hér er til kynningar og samráðs er samið í heilbrigðisráðuneytinu í nánu samráði við embætti landlæknis og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Nánari upplýsingar

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007 (skimunarskrá) sem hér er til kynningar og samráðs er samið í heilbrigðisráðuneytinu í nánu samráði við embætti landlæknis og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Skimunarskrá er nú rekin sem sameiginlegt sjúkraskrárkerfi og á ábyrgð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem hefur samhæfingarhlutverk með krabbameinsskimunum á landsvísu. Frumvarpið setur nauðsynlega lagastoð fyrir skimunarskrá en skráin er lykilatriði í því að tryggja örugga framkvæmd krabbameinsskimana. Markmið frumvarpsins er að færa ábyrgð skrárinnar frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til embætti landlæknis. Frumvarpið felur þannig í sér útfærslu á ákvörðun heilbrigðisráðherra um að fela embætti landlæknis rekstur skimunarskrár sem styðja á við framkvæmd krabbameinsskimana. Embætti landlæknis hefur rekið persónugreinanlegar heilbrigðisskrár um margra ára skeið sem hafa haft mikilvægu hlutverki að gegna varðandi yfirsýn yfir heilbrigðisþjónustu og heilsufar og hafa þær skapað grundvöll fyrir eftirlit, gæðaþróun og rannsóknir.

Um er að ræða frumvarp þar sem lagt er til að ein ný málsgrein bætist við 8. gr. laganna. Í ákvæðinu er lagt til að ráðherra setji reglugerð sem heimilar landlækni að skipuleggja og halda miðlæga meðferðartengda heilbrigðisskrá á landsvísu í tengslum við krabbameinsskimanir sem nefnist skimunarskrá. Tilgangur skrárinnar verði að stuðla að samræmdri og markvissri framkvæmd og eftirfylgni krabbameinsskimana og auka gæði og öryggi í heilbrigðisþjónustu. Með ákvæðinu er ráðherra jafnframt gert heimilt að kveða nánar á um þær persónugreinanlegu upplýsingar sem heimilt er að safna og varðveita, öryggisráðstafanir og réttindi hinna skráðu einstaklinga. Þetta er talið mikilvægt þar sem slík vinnsla þarf að vera skýr og byggð á lagaheimild í slíkum tilfellum.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Skrifstofa heilsueflingar og vísinda

hrn@hrn.is