Til umsagnar
22.12.2021–7.1.2022
Í vinnslu
8.1.–7.3.2022
Samráði lokið
8.3.2022
Mál nr. S-240/2021
Birt: 22.12.2021
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Dómsmálaráðuneytið
Almanna- og réttaröryggi
Engar umsagnir bárust.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á almennum hegningarlögum til að bregðast við tilmælum vinnuhóps Efnahagssamvinnu- og þróunarstofnunarinnar (OECD) um mútur í alþjóðlegum viðskiptum (e. Working Group on Bribery)
Frumvarpið er samið til að bregðast við tilmælum vinnuhóps Efnahagssamvinnu- og þróunarstofnunarinnar (OECD) um mútur í alþjóðlegum viðskiptum (e. Working Group on Bribery), sbr. skýrslu vinnuhópsins frá desember 2020 í tilefni af fjórðu úttekt vinnuhópsins um framkvæmd Íslands á samningi um baráttu gegn mútugreiðslum til erlendra opinberra starfsmanna í alþjóðlegum viðskiptum (erlend mútubrot) frá 17. desember 1997 (mútusamningurinn).
Í frumvarpinu er mælt fyrir um breytingar á ákvæðum almennra hegningarlaga sem taka til erlendra mútubrota. Helstu efnisatriði frumvarpsins lúta að breytingum á 264. gr. a laganna í því skyni að taka af allan vafa um að ákvæðið nái einnig til mútubrota er beinast að starfsmönnum erlendra fyrirtækja í opinberri eigu með sama hætti og 109. gr. nær almennt til erlendra opinberra starfsmanna.
Jafnframt er kveðið á um breytingu á refsihámarki vegna brota gegn 109. og 264. gr a. Er það annars vegar til að bregðast við tilmælum um að refsingar fyrir erlend mútubrot skuli vera sambærilegar og fyrir mútuþágur samkvæmt 128. gr. laganna, þ.e. að hámarki 6 ára fangelsi. Hins vegar er kveðið á um hækkun refsihámarks til að unnt verði að beita upptökuheimild í 69. gr. b. laganna þegar sakfellt er fyrir erlend mútubrot.
Loks er kveðið á um breytingu á 81. gr. laganna sem felur í sér að fyrningarfrestur refsiábyrgðar lögaðila vegna brota gegn 2. mgr. 109. gr. og 1. mgr. 264. gr. a. verði 10 ár í stað núverandi 5 ára.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa almanna- og réttaröryggis
kjartan.olafsson@dmr.is