Til umsagnar
21.12.2021–7.1.2022
Í vinnslu
8.1.–11.8.2022
Samráði lokið
12.8.2022
Mál nr. S-239/2021
Birt: 21.12.2021
Fjöldi umsagna: 0
Áform um lagasetningu
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Engar umsagnir bárust. Máli lauk með setningu laga nr. 32/2022 um breytingu á lögum um lýsingu verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, nr. 14/2020, og lögum um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu, nr. 20/2021 (ESB-endurbótalýsing o.fl.).
Með frumvarpinu er lagt til að reglugerð (ESB) 2021/337 um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/1129 að því er varðar endurbótalýsingu ESB verði innleidd í íslenskan rétt.
Í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru lagði framkvæmdastjórn ESB áherslu á að tryggja greiðsluhæfi og aðgengi að fjármagni til að styðja við endurbætur eftir efnahagslega áfallið sem COVID-19-heimsfaraldurinn hefur valdið. Í því skyni samþykkti framkvæmdastjórnin fjölda ráðstafana undir heitinu Endurbótapakki fyrir fjármagnsmarkaði. Ein þeirra ráðstafana, sem fellst í þeirri reglugerð sem hér er felld inn í EES-samninginn, var breyting á fyrir-komulagi lýsinga í því skyni að gera útgefendum og aðilum á fjármálamarkaði kleift að draga úr kostnaði og losa um fjármagn fyrir endurbótaferlið. Lýsing er samheiti yfir skjöl sem gefa þarf út vegna almenns útboðs verðbréfa eða töku verðbréfa til viðskipta á skipulegum markaði og er ætlað að gera fjárfestum kleift að taka upplýsta fjárfestingarákvörðun. Endurbótalýsing verðbréfa er einfaldaðra fyrirkomulag slíkrar upplýsingagjafar. Hér er því um ívilnandi ráð-stöfun að ræða fyrir fjármálafyrirtæki.
Reglugerð (ESB) 2021/337 felur í sér að létt er tímabundið og við tilteknar aðstæður á kröfum um efni lýsinga sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði innan EES. Breytingunum er ætlað að gefa lánastofnunum svigrúm til að styðja við fyrirtæki sem þurfa á endurfjármögnun að halda eftir efnahagslega áfallið sem fyrirtæki hafa orðið fyrir vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Hvorki er gert ráð fyrir verulegum áhrifum á stjórnsýslu né að útgjöld ríkisins aukist vegna innleiðingar reglugerðarinnar. Efni frumvarpsins mun tímabundið einfalda staðfestingarferli lýsinga hjá Fjármálaeftirlitinu, verði það að lögum. Er því um ívilnandi lagasetningu að ræða.
Í frumvarpinu er einnig gert ráð fyrir tilteknum breytingum á lögum um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu, nr. 20/2021, sem leiða af lögum um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa fjármálamarkaðar
benedikt.hallgrimsson@fjr.is