Til umsagnar
16.12.2021–9.1.2022
Í vinnslu
10.2022–29.1.2023
Samráði lokið
30.1.2023
Mál nr. S-233/2021
Birt: 16.12.2021
Fjöldi umsagna: 2
Áform um lagasetningu
Innviðaráðuneytið
Samgöngu- og fjarskiptamál
Eftir að þessi áform voru birt til umsagnar hafa bæði ný áform og frumvarp til laga um breytingu á lögum um póstþjónustu verið birt í samráðsgátt. Frumvarpið var svo lagt fram á Alþingi 2. desember 2022. Fjallað er um niðurstöður samráðs í 5. kafla greinargerðar með frumvarpinu.
Til umsagnar eru áform um breytingar á lögum um póstþjónustu nr. 98/2019, með síðari breytingum, ef þörf verður á með hliðsjón af vinnu starfshóps um póstþjónustu. Hægt er að senda inn umsögn til og með 9. janúar nk.
Í bráðabirgðaákvæði II laga um póstþjónustu nr. 98/2019, með síðar breytingu er kveðið á um að ráðherra skuli skipa starfshóp sem meta skuli hvernig best megi tryggja að ná verði markmiði 1. gr. laga um póstþjónustu. Hópurinn skalhafa hliðsjón af tækninýjungum, samkeppnissjónarmiðum og alþjóðlegum skuldbindinum Íslands. Þá er kveðið á um markmið hópsins. Að lokum er lögð á það áhersla að horfa þurfi til tækifæra sem felast í því að gera breytinga á þjónustunni fyrir allt landið sem leitt geta til aukinnar hagræðingar. Þar má t.d. nefna aukna sjálfsafgreiðslu, rafrænna lausna, aukna samþættingu póstþjónustu og annars aksturs í dreifbýli.
Þar sem vinna starfshópsins kann að kalla á lagabreytingar eru áform þessi lögð fram en starfshópurinn skal skila skýrslu í lok desember.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið
srn@srn.is