Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 22.12.2021–12.1.2022

2

Í vinnslu

  • 13.1.–17.8.2022

3

Samráði lokið

  • 18.8.2022

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-222/2021

Birt: 22.12.2021

Fjöldi umsagna: 4

Drög að frumvarpi til laga

Dómsmálaráðuneytið

Almanna- og réttaröryggi

Drög að frumvarpi til laga um landamæri

Niðurstöður

Ráðherra mælti fyrir frumvarpi til laga um landamæri á 152. löggjafarþingi. Tekið hafði verið tillit til nokkurra athugasemda sem bárust um samráðsgáttina. Frumvarpið náði ekki fram að ganga fyrir þinglok.

Málsefni

Dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um landamæri.

Nánari upplýsingar

Um er að ræða drög að frumvarpi til laga um landamæri. Sérstök lög um landamæri hafa ekki verið sett áður en hugmyndin er þó ekki ný. Undanfarin ár hafa málefni landamæra tekið örum breytingum og leitt af sér fjölmargar áskoranir, m.a. vegna aukins eftirlits með löglegri umferð um landamæri. Áherslan á Schengen-vettvangnum hefur verið á stefnumótun, upplýsingaskipti, nýtingu tækninýjunga og styrkingu landamæraeftirlits, m.a. með því að styrkja fyrirliggjandi upplýsingakerfi samstarfsins, kynna ný til sögunnar og efla Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex). Þróun hér á landi í málefnum landamæra og landamæraeftirlits hefur tekið mið af stefnu Schengen-samstarfsins og þróun þess.

Megintilgangur frumvarps til laga um landamæri er að tryggja að landamæravarsla sé framkvæmd með öruggum og skilvirkum hætti og til samræmis við lög, reglugerðir og þær alþjóðlegu skuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist. Lög um landamæri þykja til þess fallin að kveða með skýrum hætti á um réttindi og skyldur bæði borgara og ríkisins þegar kemur að för einstaklinga yfir innri og ytri landamæri Íslands. Almennt gilda reglurnar bæði fyrir íslenska ríkisborgara sem og útlendinga, nema sérstaklega sé kveðið á um annað í ákvæðum frumvarpsins. Efni frumvarpsins tekur að miklu leyti mið af núgildandi lögum og reglum sem gilda um för einstaklinga yfir landamæri, þá aðallega lögum um útlendinga, nr. 80/2016 og reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, ásamt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/399 um för fólks yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar). Með frumvarpinu er ekki síður stefnt að því að styrkja lagastoðina fyrir reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, setja lagastoð fyrir reglugerðir sem ætla má að þurfi að innleiða á grundvelli laganna, m.a. vegna þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi og innleiða ákveðin efnisákvæði Schengen-gerða um komu og brottfararkerfi á ytri landamærum, sbr. reglugerð (ESB) 2017/2225 og (ESB) 2017/2226, um ferðaheimildarkerfi (ETIAS) sbr. reglugerð (ESB) 2018/1240 og (ESB) 2018/1241 og um samvirkni þeirra við önnur upplýsingakerfi ESB, sbr. reglugerð (ESB) 2019/817 og (ESB) 2019/818. Fyrrnefndar gerðir verða síðan innleiddar í íslenskan rétt með reglugerðum sem munu hafa lagastoð í lögum um landamæri, verði frumvarpið óbreytt að lögum, enda er slík innleiðing nauðsynleg til að innleiða gerðirnar að fullu. Ísland er skuldbundið til að innleiða framangreindar gerðir á grundvelli Schengen-samstarfsins. Vegna náins samspils við lög um útlendinga eru jafnframt lagðar til ákveðnar breytingar á lögum um útlendinga i frumvarpinu.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Skrifstofa almanna- og réttaröryggis

dmr@dmr.is